Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Beiðni um heimild fyrir ferðaþjónustu í Drangey
Málsnúmer 2608086Vakta málsnúmer
2.Upprekstrarfélag Eyvindarstaðarheiði - beiðni um borun eftir vatni
Málsnúmer 2607048Vakta málsnúmer
Stjórn Upprekstrarfélagsins Eyvindarstaðarheiðar þau Guðmundur Rúnar Halldórsson, Guðmundur Haukur Jakobsson, Björn Grétar Friðriksson og Þórunn Eyjólfsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Einnig sátu fundinn Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi Skagafjarðar auk Péturs Arasonar, sveitarstjóra Húnabyggðar sem sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Sjórn Eyvindarstaðaheiðar kynnti fyrirliggjandi beiðni um borun eftir vatni. Jafnframt fóru fram umræður um stöðu félagsins og starfsemi þess.
Byggðarráð þakkar stjórn og gestum fyrir komuna og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að settur verði á fót vinnuhópur til að skoða framtíðar fyrirkomulag rekstrar á skálum á Eyvindarstaðaheiði. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.

3.Framkvæmdaryfirlit
Málsnúmer 2608234Vakta málsnúmer
Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu helstu framkvæmda á vegum sveitarfélagsins.
Byggðarráð þakkar fyrir yfirferðina og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum.
Byggðarráð þakkar fyrir yfirferðina og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum.
4.Staða framkvæmda við menningarhús á Sauðárkróki
Málsnúmer 2608233Vakta málsnúmer
Hjörvar Halldórsson sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda ásamt sveitarstjóra.
Fram kom að jarðvegsframkvæmdir væru í góðum farvegi og unnið væri að því að keyra efni í grunn byggingarinnar. Jafnframt væri unnið að frágangi gagna vegna útboðs á heildarbyggingunni sem og lokahönnun verkefnisins. Ráðgert er að boðað verði til fundar í byggingarnefnd Menningarhússins um leið og tilefni þykir til.
Byggðarráð tekur upplýsingunum vel og fagnar framgangi verkefnisins.

5.Kauptilboð í Háholt F224-1037
Málsnúmer 2608037Vakta málsnúmer
Lagt var fram til kynningar samþykkt gagntilboð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna sölu fasteignarinnar Garðhúsa lands (Háholts) í Skagafirði ásamt 3 ha eignarlóð.
Kaupendur eru Þorsteinn Frímann Guðmundsson og Rósa Mary Þorsteinsdóttir. Kaupverð samkvæmt samþykktu gagntilboði er 88.000.000 kr.
Kaupendur eru Þorsteinn Frímann Guðmundsson og Rósa Mary Þorsteinsdóttir. Kaupverð samkvæmt samþykktu gagntilboði er 88.000.000 kr.
Fundi slitið - kl. 11:36.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð að nýju þegar frekari gögn og tillögur liggja fyrir.