Fara í efni

Staða framkvæmda við menningarhús á Sauðárkróki

Málsnúmer 2608233

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 206. fundur - 27.08.2026

Hjörvar Halldórsson sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda ásamt sveitarstjóra.
Fram kom að jarðvegsframkvæmdir væru í góðum farvegi og unnið væri að því að keyra efni í grunn byggingarinnar. Jafnframt væri unnið að frágangi gagna vegna útboðs á heildarbyggingunni sem og lokahönnun verkefnisins. Ráðgert er að boðað verði til fundar í byggingarnefnd Menningarhússins um leið og tilefni þykir til.
Byggðarráð tekur upplýsingunum vel og fagnar framgangi verkefnisins.