Skipulag og stöðugildi á fjölskyldusviði
Málsnúmer 2606012
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026
Lagt fram erindi sviðsstjóra fjölskyldusviðs þar sem óskað er eftir breytingum á skipulagi sviðsins, annars vegar með því að breyta starfi verkefnastjóra fræðslumála í starf leiðtoga fræðslumála og hins vegar með aukningu á stöðugildi ráðgjafa um 66,7% til að mæta auknu umfangi og flóknari verkefnum á sviðinu.
Byggðarráð samþykkir aukningu á stöðugildi ráðgjafa um 66,7% frá og með 1. ágúst 2026.
Málinu er vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun, 3,5 m.kr.fyrir árið 2026. Jafnframt er lagt til að við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 verði skoðað hvernig hægt sé að hagræða á móti þessari aukningu.

Bryndís Lilja Hallsdóttir kynnti skipulag fjölskyldusviðs og þau verkefni sem sviðið heldur utan um. Jafnframt fór hún yfir minnisblað um skipulag og stöðugildi á fjölskyldusviði dagsett 28. maí 2026, sem liggur fyrir sem fylgiskjal fundarliðarins. Lagt er til að ráðgjafastöðugildi á sviðinu verði aukin til að mæta auknu umfangi og flóknari verkefnum á sviðinu.
Byggðarráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.