Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Skipulag og stöðugildi á fjölskyldusviði
Málsnúmer 2606012Vakta málsnúmer
2.Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra - Skagafjörður - Samhæfing og samvinna
Málsnúmer 2504155Vakta málsnúmer
Lagt fram minnisblað um áhrif samþykktra lagabreytinga á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og þau verkefni sem munu áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga frá og með 1. janúar 2027.
Byggðarráð lýsir áhyggjum af áhrifum lagabreytinganna á sveitarfélög. Byggðaráðið harmar að ríkið taki til sín stóran hluta tekjuberandi verkefna á meðan sveitarfélögunum er áfram ætlað að sinna verkefnum sem fela í sér kostnað og ábyrgð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga til málsins og þeirra áhrifa sem breytingarnar hafa á sveitarfélög. Jafnframt er sveitarstjóra falið að vera í samráði við önnur sveitarfélög innan heilbrigðisumdæmisins um næstu skref.

3.Félagsheimilið Bifröst 2132089 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer
Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-047002, dagsett 1. júlí 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Benmen slf., kt. 700418-0810, Öldustíg 5, 550 Sauðárkróki um leyfi til Veitingaleyfis í Flokki II - G Samkomusalir í Félagsheimilinu Bifröst, F213-2089, Skagfirðingabraut 2, 550 Sauðárkróki fyrir allt að 100 gesti. Afgreiðslutími áfengis er áætlaður frá 14:00 til miðnættis bæði virka daga og frídaga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.
4.Skógarhlíð - náttúruperla
Málsnúmer 2606232Vakta málsnúmer
Lagður var fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, dagsettur 25. júní sl.
Byggðarráð þakkar Hafdísi Einarsdóttur fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram um nýtingu útivistarsvæða í Skógarhlíð, Litla-Skógi og Nöfum.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að svæðin nýtist sem best til fjölbreyttrar útivistar og að tryggt verði að ólíkir notendahópar geti notið þeirra.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að halda áfram samtali við fulltrúa Hestamannafélags Skagfirðings til að fara yfir merkingar, leiðaval og mögulegar útfærslur á svæðinu. Jafnframt verði skoðað með hvaða hætti megi stuðla að sem bestri sambúð þeirra hópa sem nýta svæðið til útivistar, þannig að sem flestir geti notið þessarar sameiginlegu útivistarparadísar.

5.Framboð til stjórnar Sambandsins
Málsnúmer 2606230Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 26. júní sl. Í tölvupóstinum óskar kjörnefnd eftir því að þeir fulltrúar í sveitarstjórnum sem hafa áhuga á að gefa kost á sér til setu í stjórn Sambandsins tilkynni um það.
Fundi slitið - kl. 09:30.
Bryndís Lilja Hallsdóttir kynnti skipulag fjölskyldusviðs og þau verkefni sem sviðið heldur utan um. Jafnframt fór hún yfir minnisblað um skipulag og stöðugildi á fjölskyldusviði dagsett 28. maí 2026, sem liggur fyrir sem fylgiskjal fundarliðarins. Lagt er til að ráðgjafastöðugildi á sviðinu verði aukin til að mæta auknu umfangi og flóknari verkefnum á sviðinu.
Byggðarráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.