Lagður var fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, dagsettur 25. júní sl.
Byggðarráð þakkar Hafdísi Einarsdóttur fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram um nýtingu útivistarsvæða í Skógarhlíð, Litla-Skógi og Nöfum.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að svæðin nýtist sem best til fjölbreyttrar útivistar og að tryggt verði að ólíkir notendahópar geti notið þeirra.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að halda áfram samtali við fulltrúa Hestamannafélags Skagfirðings til að fara yfir merkingar, leiðaval og mögulegar útfærslur á svæðinu. Jafnframt verði skoðað með hvaða hætti megi stuðla að sem bestri sambúð þeirra hópa sem nýta svæðið til útivistar, þannig að sem flestir geti notið þessarar sameiginlegu útivistarparadísar.