Fara í efni

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra - Skagafjörður - Samhæfing og samvinna

Málsnúmer 2504155

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24. fundur - 23.04.2025

Á fundinn kom Svavar Sigurðsson starfsmaður HNV og ræddi við nefndina um tilvonandi umhverfisdaga sveitarfélagsins. HNV mun í tilefni þeirra senda brýningu til íbúa í staðarmiðla um bætta umgengni. Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að gerð verði sameiginleg samþykkt sveitarfélaga í umdæmi HNV um umgengni og þrifnað í sveitarfélögunum. Sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samvinnu við HNV.

Byggðarráð Skagafjarðar - 201. fundur - 08.07.2026

Lagt fram minnisblað um áhrif samþykktra lagabreytinga á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og þau verkefni sem munu áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga frá og með 1. janúar 2027.

Byggðarráð lýsir áhyggjum af áhrifum lagabreytinganna á sveitarfélög. Byggðaráðið harmar að ríkið taki til sín stóran hluta tekjuberandi verkefna á meðan sveitarfélögunum er áfram ætlað að sinna verkefnum sem fela í sér kostnað og ábyrgð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga til málsins og þeirra áhrifa sem breytingarnar hafa á sveitarfélög. Jafnframt er sveitarstjóra falið að vera í samráði við önnur sveitarfélög innan heilbrigðisumdæmisins um næstu skref.