Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

24. fundur 23. apríl 2025 kl. 09:00 - 11:25 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Guðný Hólmfríður Axelsdóttir ritari
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Guðný Axelsdóttir ritari
Dagskrá

1.Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra - Skagafjörður - Samhæfing og samvinna

Málsnúmer 2504155Vakta málsnúmer

Á fundinn kom Svavar Sigurðsson starfsmaður HNV og ræddi við nefndina um tilvonandi umhverfisdaga sveitarfélagsins. HNV mun í tilefni þeirra senda brýningu til íbúa í staðarmiðla um bætta umgengni. Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að gerð verði sameiginleg samþykkt sveitarfélaga í umdæmi HNV um umgengni og þrifnað í sveitarfélögunum. Sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samvinnu við HNV.

2.Umhverfisdagar Skagafjarðar 2025

Málsnúmer 2503347Vakta málsnúmer

Umhverfisdagar Skagafjarðar 2025 fara fram 5-17 maí nk. Íbúar eru hvattir til að taka þátt og snyrta og fegra umhverfi sitt með því að taka til og etv. mála sé þörf á því. Öllum íbúum gefst kostur á að skila af sér úrgangi gjaldfrjálst á móttökustöðum sorps í sveitarfélaginu meðan á umhverfisdögum stendur. Fyrirtæki eru hvött til að gefa afslætti af vörum sem stutt gætu þetta verkefni. Hreinn Skagafjörður er fallegri Skagafjörður.

3.Áætlun refa- og minkaveiði 2025

Málsnúmer 2503346Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun um refa og minkaveiði í Skagafirði árið 2025 ásamt yfirliti um veiðar síðustu ára. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða en jafnframt að gera breytingar á fyrikomulagi sem taki gildi um næstu áramót og verði kynnt sérstaklega í haust.

4.Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar 2024

Málsnúmer 2504055Vakta málsnúmer

Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar 2024 lagður fram til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að óska eftir nánari upplýsingum varðandi reikninginn en á honum eru ýmsir ágallar.

5.Fjallskilasjóður Staðardeildar ársreikningar 2024

Málsnúmer 2504082Vakta málsnúmer

Fjallskilasjóður Staðardeildar ársreikningar 2024 vegna Staðarhrepps og Staðarafréttar lagðir fram til kynningar.

6.Urðaður úrgangur 2025 í Stekkjarvík

Málsnúmer 2504156Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á úrgangi til urðunar í Stekkjarvík.

7.Fundagerðir Hafnasambands Íslands 2025

Málsnúmer 2501004Vakta málsnúmer

Fundagerðir Hafnasambands Íslands 2025 lagðar fram til kynningar.

8.Breytt verklag í eftirliti - skrifborðseftirlit

Málsnúmer 2504048Vakta málsnúmer

Umhverfis- og orkustofnun kynnir breytt verklag í eftirliti með leyfisskyldri starfssemi.

9.Loftlagsatlas Íslands

Málsnúmer 2504105Vakta málsnúmer

Kynntur nýr vefur Veðurstofunnar, Loftlagsatlas Íslands https://gottvedur.is/loftslagsbreytingar/

10.Innviðir á Íslandi 2025 - Skýrsla

Málsnúmer 2504158Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga: Innviðir á Íslandi 2025. Skýrsluna má finna á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.

Fundi slitið - kl. 11:25.