Félagsheimilið Bifröst 2132089 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2607005
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 89. fundur - 08.07.2026
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 1. júlí 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-047002. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Sigfúsar Arnars Benediktssonar f.h. Benmen slf. um leyfi til reksturs veitingaleyfis í flokki II - G, samkomusalir í félagsheimilinu Bifröst, F2132089 sem stendur á lóðinni númer 2 við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.