Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
1.Húsey 1 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2601248Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 23. janúar 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-005316. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Ásu Dóru Finnbogadóttur f.h. Stikla ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - C, minna gistiheimili í íbúðarhúsi sem stendur á lóðinni Húsey 1, L228798, F256534, 561 Varmahlíð. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
2.Túngata 2 Hofsós - Umsókn um fjölgun séreignahluta
Málsnúmer 2604121Vakta málsnúmer
Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sækir f.h. Skagafjarðar, eiganda fjölbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 2 við Túngötu á Hofsósi, um leyfi til þess að skipta húsinu úr einni í sjö séreignir. Framlagðir uppdrættir gerðir hjá Nýhönnun af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 15.06.2026. Fyrir liggur eignaskiptayfirlýsing vegna breyttrar skráningar húss. Erindið samþykkt.
3.Félagsheimilið Bifröst 2132089 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 1. júlí 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-047002. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Sigfúsar Arnars Benediktssonar f.h. Benmen slf. um leyfi til reksturs veitingaleyfis í flokki II - G, samkomusalir í félagsheimilinu Bifröst, F2132089 sem stendur á lóðinni númer 2 við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
4.Drekahlíð 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2607002Vakta málsnúmer
Kolbrún Jónsdóttir og Þröstur Ingi Jónsson sækja um leyfi til að byggja stoðvegg á lóðinni númer 1 við Drekahlíð á Sauðárkróki. Framlagður uppdráttur gerður hjá Áræðni ehf. af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdráttur númer 101, dagsettur 22.06.2026. Fyrir liggur samþykki eiganda Drekahlíðar 3. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarheimild veitt.
5.Víðibrekka 4 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2607010Vakta málsnúmer
Guðmundur Þór Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Auðar Herdísar Sigurðardóttur um leyfi til að byggja sökkla og koma fyrir frístundahúsi á lóðinni nr. 4 við Víðibrekku, L241340. Húsið sem um ræðir er í byggingu á lóð, kennslusvæði FNV við Skagfirðingabraut 26 á Sauðárkróki sbr. samþ. byggingaráform og stöðuleyfi frá 71. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24.09.2025. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 0626, númer A 01, A 02, A 03 og A 04, dagsettir 29.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarheimild veitt.
Fundi slitið - kl. 14:30.