Túngata 2 Hofsós - Umsókn um fjölgun séreignahluta
Málsnúmer 2604121
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 89. fundur - 08.07.2026
Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sækir f.h. Skagafjarðar, eiganda fjölbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 2 við Túngötu á Hofsósi, um leyfi til þess að skipta húsinu úr einni í sjö séreignir. Framlagðir uppdrættir gerðir hjá Nýhönnun af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 15.06.2026. Fyrir liggur eignaskiptayfirlýsing vegna breyttrar skráningar húss. Erindið samþykkt.