Víðibrekka 4 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2607010
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 89. fundur - 08.07.2026
Guðmundur Þór Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Auðar Herdísar Sigurðardóttur um leyfi til að byggja sökkla og koma fyrir frístundahúsi á lóðinni nr. 4 við Víðibrekku, L241340. Húsið sem um ræðir er í byggingu á lóð, kennslusvæði FNV við Skagfirðingabraut 26 á Sauðárkróki sbr. samþ. byggingaráform og stöðuleyfi frá 71. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24.09.2025. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 0626, númer A 01, A 02, A 03 og A 04, dagsettir 29.06.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt, byggingarheimild veitt.