Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2606204
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 200. fundur - 28.06.2026
Sveitarstjórn Skagafjarðar lýsir yfir mikilli undrun og þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu. Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026
Lagt fram svar mennta- og barnamálaráðuneytisins við bókun byggðarráðs Skagafjarðar frá 28. júní 2026 vegna reglugerðar um þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Byggðarráð fagnar því að ráðuneytið hafi brugðist við ábendingum sveitarfélagsins og skýrt afstöðu sína. Byggðarráð er þó áfram þeirrar skoðunar að ný reglugerð þrengi umfang samkomulags ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 með þeim hætti að ábyrgð og kostnaður vegna ákveðins hóps barna verði áfram hjá sveitarfélögum þrátt fyrir væntingar sem samkomulagið vakti.
Byggðarráð ítrekar mikilvægi þess að skýr samstaða ríki milli ríkis og sveitarfélaga um túlkun samkomulagsins og ábyrgðarskiptingu í þessum viðkvæma málaflokki. Þá leggur byggðarráð áherslu á að þjónusta við börn með fjölþættan vanda og fjölskyldur þeirra verði tryggð óháð ágreiningi um kostnaðar- og ábyrgðarskiptingu.
Svar ráðuneytisins er lagt fram til kynningar.