Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
Á 51. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026 var samþykkt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar á meðan á sumarleyfi stendur, sbr. 8. gr. samþykktar um stjórn og skipulag sveitarfélagsins Skagafjarðar nr. 1336/2022. Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að veita byggðarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem upp kunna að koma á meðan á sumarleyfi stendur. Ákvarðanir sem byggðarráð tekur á þessu tímabili og falla undir framangreinda heimild teljast því fullnaðarákvarðanir og er þeim eigi vísað til staðfestingar í sveitarstjórn, sbr. 2. mgr. 35. gr. samþykktar nr. 1336/2022, sbr. einnig 5. mgr. 35. gr. og 1. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
1.Viljayfirlýsing um Rannsóknarsetur íslenska hestsins
Málsnúmer 2606128Vakta málsnúmer
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar stofnun rannsóknarseturs um íslenska hestinn og undirstrikar mikilvægi þess að efla rannsóknir, þekkingarsköpun og kynningu á íslenska hestinum sem einni af mikilvægustu menningar- og atvinnugreinum landsins.
Byggðarráð telur að rannsóknarsetur af þessum toga eigi hvergi betur heima en á Hólum í Hjaltadal, sem er heimavöllur íslenska hestsins og miðstöð menntunar, rannsókna og þróunar á sviði hestamennsku.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í stofnun rannsóknarseturs íslenska hestsins í samræmi við framlögð drög að viljayfirlýsingu milli Skagafjarðar, Háskóla Íslands á Hólum og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Með viljayfirlýsingunni lýsir Skagafjörður yfir vilja sínum til að að veita rannsóknarsetrinu árlegt framlag að fjárhæð 7,5 m.kr., sem ætlað er að tryggja 50% stöðugildi við starfsemi setursins til þriggja ára. Einnig liggur fyrir að höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra HÍ verða fluttar í Skagafjörð og eflast þá enn frekar tengsl rannsókna, háskólastarfs og samfélaga víða um land.
Jafnframt er gert ráð fyrir að Sögusetur íslenska hestsins verði sameinað rannsóknarsetrinu. Samþykki Byggðarráðs á framlaginu er háð því að stjórn Söguseturs íslenska hestsins samþykki þá ráðstöfun sem felst í fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.
Að lokum leggur Byggðarráð áherslu á að starfsfólk rannsóknarsetursins komi árlega fyrir ráðið og kynni starfsemi setursins, helstu verkefni þess og árangur af starfinu.

2.Beiðni um styrk
Málsnúmer 2606224Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 25. júní 2026, frá skipuleggjendum Dags menningar og ræktunar í Skagafirði. Í tölvupóstinum óska skipuleggjendur eftir fjárstuðningi sveitarfélagsins til að standa straum af hluta kostnaðar við verkefnið. Markmið verkefnisins er að hvetja gesti Landsmóts til að dvelja lengur í Skagafirði og kynnast þeirri einstöku hrossarækt, menningu og sögu sem héraðið hefur upp á að bjóða.
Byggðarráð fagnar framtaki skipuleggjenda Dags menningar og ræktunar í Skagafirði og þeim tækifærum sem felast í að kynna héraðið fyrir gestum Landsmóts hestamanna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 400.000 krónur.

3.Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2606204Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Skagafjarðar lýsir yfir mikilli undrun og þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu. Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
4.Skipun öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldri borgara
Málsnúmer 2606194Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi Landssambands eldri borgara um skipun öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi virks samráðs við eldri borgara og bendir á að skipað var í öldungaráð að nýju á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí sl. Af hálfu sveitarfélagsins sitja Jóhanna Björnsdóttir, Merete Rabølle og Sylvía Sif Halldórsdóttir í öldungaráði.

5.Fromboðsfrestur til formanns Sambandsins
Málsnúmer 2606195Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar erindi, dagsett 23. júní 2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um framboðsfrest til kjörs formanns sambandsins og framkvæmd formannskjörs sumarið 2026.
Fundi slitið - kl. 09:38.