Fara í efni

Viljayfirlýsing um Rannsóknarsetur íslenska hestsins

Málsnúmer 2606128

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 198. fundur - 19.06.2026

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið.

Hólmfríður kynnti hugmyndir um að koma á fót nýju rannsóknarsetri HÍ á Hólum með áherslu á rannsóknir á íslenska hestinum.

Byggðarráð þakkar Hólmfríði fyrir góða kynningu og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við rektor.

Byggðarráð Skagafjarðar - 199. fundur - 25.06.2026

Lögð voru fram drög að samkomulagi milli Háskóla Íslands á Hólum, sveitarfélagsins Skagafjarðar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um stofnun Rannsóknarseturs íslenska hestsins.

Í samkomulaginu er lagt til að sameina Sögusetur íslenska hestsins og Akademíu íslenska hestsins, sem hvoru tveggja er staðsett á Hólum, í Rannsóknasetur íslenska hestsins á Hólum, sem verður 14. setur Stofnunar rannsóknarsetra HÍ. Lagt er til að Rannsóknasetur íslenska hestsins verði staðsett í húsnæði Hestafræðideildar Háskóla Íslands á Hólum. Mun þetta rannsóknarsetur leggja sérstaka áherslu á rannsóknir tengdar íslenska hestinum.

Ráðuneytið leggur til fjármögnun vegna stofnunar og reksturs setursins, en sveitarfélagið Skagafjörður leggur til árlegt framlag til ráðningar verkefnastjóra í hálft starf. Háskóli Íslands á Hólum ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu setursins í samráði við hagaðila.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Byggðarráð Skagafjarðar - 200. fundur - 28.06.2026

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar stofnun rannsóknarseturs um íslenska hestinn og undirstrikar mikilvægi þess að efla rannsóknir, þekkingarsköpun og kynningu á íslenska hestinum sem einni af mikilvægustu menningar- og atvinnugreinum landsins.
Byggðarráð telur að rannsóknarsetur af þessum toga eigi hvergi betur heima en á Hólum í Hjaltadal, sem er heimavöllur íslenska hestsins og miðstöð menntunar, rannsókna og þróunar á sviði hestamennsku.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í stofnun rannsóknarseturs íslenska hestsins í samræmi við framlögð drög að viljayfirlýsingu milli Skagafjarðar, Háskóla Íslands á Hólum og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Með viljayfirlýsingunni lýsir Skagafjörður yfir vilja sínum til að að veita rannsóknarsetrinu árlegt framlag að fjárhæð 7,5 m.kr., sem ætlað er að tryggja 50% stöðugildi við starfsemi setursins til þriggja ára. Einnig liggur fyrir að höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra HÍ verða fluttar í Skagafjörð og eflast þá enn frekar tengsl rannsókna, háskólastarfs og samfélaga víða um land.

Jafnframt er gert ráð fyrir að Sögusetur íslenska hestsins verði sameinað rannsóknarsetrinu. Samþykki Byggðarráðs á framlaginu er háð því að stjórn Söguseturs íslenska hestsins samþykki þá ráðstöfun sem felst í fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.

Að lokum leggur Byggðarráð áherslu á að starfsfólk rannsóknarsetursins komi árlega fyrir ráðið og kynni starfsemi setursins, helstu verkefni þess og árangur af starfinu.