Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

199. fundur 25. júní 2026 kl. 08:15 - 09:50 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Eyþór Fannar Sveinsson formaður
  • Guðlaugur Skúlason varam.
    Aðalmaður: Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Magnús Barðdal Reynisson sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

2.Viljayfirlýsing um Rannsóknarsetur íslenska hestsins

Málsnúmer 2606128Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að samkomulagi milli Háskóla Íslands á Hólum, sveitarfélagsins Skagafjarðar og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um stofnun Rannsóknarseturs íslenska hestsins.

Í samkomulaginu er lagt til að sameina Sögusetur íslenska hestsins og Akademíu íslenska hestsins, sem hvoru tveggja er staðsett á Hólum, í Rannsóknasetur íslenska hestsins á Hólum, sem verður 14. setur Stofnunar rannsóknarsetra HÍ. Lagt er til að Rannsóknasetur íslenska hestsins verði staðsett í húsnæði Hestafræðideildar Háskóla Íslands á Hólum. Mun þetta rannsóknarsetur leggja sérstaka áherslu á rannsóknir tengdar íslenska hestinum.

Ráðuneytið leggur til fjármögnun vegna stofnunar og reksturs setursins, en sveitarfélagið Skagafjörður leggur til árlegt framlag til ráðningar verkefnastjóra í hálft starf. Háskóli Íslands á Hólum ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu setursins í samráði við hagaðila.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3.Umsókn um leyfi fyrir rallýkeppni 25. júlí 2026

Málsnúmer 2604073Vakta málsnúmer

Eyþór Fannar Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Lögð fram umsókn frá Bílaklúbbi Skagafjarðar, dagsett 12. júní 2026, þar sem sótt er um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Skagafirði 25. júlí nk. Keppnin er fjórða keppnin í Íslandsmeistaramóti Akstursíþróttasambands Íslands (AKÍS) og fer fram í samræmi við reglur AKÍS og reglugerð nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppnir, með áorðnum breytingum. Ráðgert er að keppnin fari fram með hefðbundnu sniði og eknar verði sérleiðir um þá vegi sem verið hefur undanfarin ár. Þannig verði farnar sérleiðir um Mælifellsdal og Vesturdal.

Byggðarráð samþykkir erindið með tveimur atkvæðum fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.

4.Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Skagafirði

Málsnúmer 2606183Vakta málsnúmer

Lögð voru fram drög að uppfærðri samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Í upphafi kjörtímabils hefur aðalmönnum staðið til boða styrkur til tækjakaupa. Lagt er til að formfesta heimild til tækjakaupa að upphæð 170.000 króna.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa í Skagafirði og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 09:50.