Fara í efni

Beiðni um styrk

Málsnúmer 2606224

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 200. fundur - 28.06.2026

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 25. júní 2026, frá skipuleggjendum Dags menningar og ræktunar í Skagafirði. Í tölvupóstinum óska skipuleggjendur eftir fjárstuðningi sveitarfélagsins til að standa straum af hluta kostnaðar við verkefnið. Markmið verkefnisins er að hvetja gesti Landsmóts til að dvelja lengur í Skagafirði og kynnast þeirri einstöku hrossarækt, menningu og sögu sem héraðið hefur upp á að bjóða.

Byggðarráð fagnar framtaki skipuleggjenda Dags menningar og ræktunar í Skagafirði og þeim tækifærum sem felast í að kynna héraðið fyrir gestum Landsmóts hestamanna.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 400.000 krónur.