Fara í efni

Samþykkt um fráveitu í Skagafirði - 2026

Málsnúmer 2605179

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 47. fundur - 21.05.2026

Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12 des. 2023.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og vísar til sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026

Máli vísað frá 47. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 21. maí 2026, þannig bókað:
"Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12 des. 2023.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og vísar til sveitarstjórnar."

Samþykkt fráveitu í Skagafirði borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Byggðarráð Skagafjarðar - 202. fundur - 16.07.2026

Málið er hér lagt fyrir byggðarráð til síðari umræðu.
Kynnt drög að uppfærðri samþykkt um fráveitu í Skagafirði nr. 1402 frá 12. des. 2023. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkti samhljóða drögin á 47. fundi nefndarinnar þann 11. maí 2026 og vísaði til sveitarstjórnar.
Drögin voru samþykkt í fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar nr. 51 þann 1. júlí 2026.
Afgreiðsla 51. fundar sveitarstjórnar þann 1. júlí 2026 staðfest á 202. fundi Byggðarráðs þann 16. júlí 2026 með þremur atkvæðum.

Byggðarráð, í umboði sveitarsjórnar, samþykkir framlagða samþykkt um fráveitu í Skagafirði 2026.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Málinu var upprunalega vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar af 47. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 21. maí 2026. Sveitarstjórn samþykkti samþykktina með níu atkvæðum á 51. fundi sínum þann 1. júlí 2026. Síðan þá hefur samþykktin farið fyrir heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra og fengið jákvæða umsögn nefndarinnar. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 skal sveitarstjórn hafa tvær umræður um samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra og er samþykktin því tekin aftur á dagskrá sveitarstjórnar.

Samþykktin borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.