Fara í efni

Hofskirkja - girðingarframkvæmdir 2026

Málsnúmer 2512055

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 186. fundur - 19.03.2026

Kynnt erindi sem beint var til sveitarfélagsins í september 2025. Meðfylgjandi erindinu eru upplýsingar frá kirkjugarðsstjórn Hofskirkjugarðs vegna endurbóta á girðingu við Hofskirkjugarð. Er óskað eftir að Skagafjörður styrki efniskostnað endurnýjunar girðingar og hliðgrindar við vestur- og norðvesturhlið Hofskirkjugarðs, að upphæð kr. 3.794.000,- í samræmi við kostnaðaráætlun og teikningar sem fylgja með erindinu. Landeigandi hyggst sinna umsjón og viðhaldi girðingar á suður-, austur- og norðausturhlið garðsins í samræmi við samkomulag á milli hans og kirkjugarðsstjórnar Hofskirkjugarðs, dagsett 14.02. 2026, sem einnig fylgir með erindinu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða greiðslu efniskostnaðar í samræmi við fyrirlagt erindi að upphæð kr. 3.794.000, enda samræmist það viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira.