Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47
Málsnúmer 2606012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026
Fundargerð 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 23. júní 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 51. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Sveitarstjóri setti fundinn og lagði fram tillögu um Davíð Loga Jónsson sem formann, Guðbjörgu Konráðsdóttur sem varaformann og Sylvíu Sif Halldórsdóttur sem ritara nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Formaður tók við fundarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Umræður um svarbréf frá umsækjendum um rekstur á Félagsheimilinu Ljósheimum. Umsækjendur sendu inn erindi þar sem óskað er eftir öðrum forsendum en tilgreind voru í framlögðum samningi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni umsækjenda og felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram erindi frá Guðrúnu Kristínu Eiríksdóttur, dags. 9. júní 2026 þar sem hún óskar eftir úrsögn úr hússtjórn Félagsheimilisins Melsgils.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndin samþykkir samhljóða úrsögn Guðrúnar Kristínu úr hússtjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram til kynningar skjal frá Markaðsstofu Norðurlands, dags. 21. apríl 2026, þar sem greint er frá því helsta í starfi Flugklasans Air 66N undanfarna mánuði.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 47 Lagt fram erindi frá Stefáni Boga Sveinssyni formanni, f.h. framkvæmdastjórnar MHR, dags. 11. júní 2026. Boðað er til aðalfundar MHR (Miðstöðvar héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu) sem fram fer fimmtudaginn 25. júní nk.
Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.