Fara í efni

Skipulagsnefnd

100. fundur 18. júní 2026 kl. 13:00 - 16:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Helga Þórsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Kjör formanns, varaformanns og ritara skipulagsnefndar

Málsnúmer 2606137Vakta málsnúmer

Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs setur fundinn í fjarveru sveitarstjóra.

Sviðsstjóri gerir tillögu um Ingvar Daða Jóhannsson sem formann nefndarinnar og Jón Daníel Jónsson sem varaformann. Einnig gerir sviðsstjóri að tillögu sinni að gera Jódísi Helgu Káradóttur að ritara nefndarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna samhljóða.
Í framhaldinu afhendir sviðsstjóri fundarstjórn yfir á kjörinn formann nefndarinnar og víkur af fundi.

Skipulagsfulltrúi fer yfir starfssvið og helstu verkefni skipulagsnefndar.

Fundi slitið - kl. 16:30.