Fara í efni

Skipulagsnefnd - 100

Málsnúmer 2606011F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók aftur við stjórn fundarins.

Fundargerð 100. fundar skipulagsnefndar frá 18. júní 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 51. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 100 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs setur fundinn í fjarveru sveitarstjóra.

    Sviðsstjóri gerir tillögu um Ingvar Daða Jóhannsson sem formann nefndarinnar og Jón Daníel Jónsson sem varaformann. Einnig gerir sviðsstjóri að tillögu sinni að gera Jódísi Helgu Káradóttur að ritara nefndarinnar.
    Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna samhljóða.
    Í framhaldinu afhendir sviðsstjóri fundarstjórn yfir á kjörinn formann nefndarinnar og víkur af fundi.

    Skipulagsfulltrúi fer yfir starfssvið og helstu verkefni skipulagsnefndar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 100. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 51. fundi sveitarstjórnar 1. júlí 2026 með níu atkvæðum.