Yfirlit HMS vegna- húsnæðis- og skipulagsmála
Málsnúmer 2605184
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026
Lagt var fram til kynningar bréf frá frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun dagsett 18. maí 2026. Í bréfinu er meðal annars fjallað um niðurstöður árlegrar samantektar HMS á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga, stöðu íbúðauppbyggingar og lóðaúthlutunar, auk þess sem vakin er athygli á þeim verkefnum sem nýkjörnar sveitarstjórnir standa frammi fyrir að loknum sveitarstjórnarkosningum. Þar á meðal er vísað til skyldu sveitarstjórna til að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag og, eftir atvikum, svæðisskipulag í ljósi landskipulagsstefnu og annarra stefnumarkandi forsendna.