Félagsmála- og tómstundanefnd
Dagskrá
1.Kjör formanns, varaformanns og ritara í félagsmála- og tómstundanefnd
Málsnúmer 2606165Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs bar upp eftirfarandi tillögu um kjör formanns, varaformanns og ritara félagsmála- og tómstundanefndar: Jakob Logi Gunnarsson fulltrúi D-lista verði formaður, Guðrún Sonja Birgisdóttir fulltrúi L-lista verði varaformaður og Halldór Jón Sigurðsson fulltrúi B-lista verði ritari. Sædís Bylgja Jónsdóttir fulltrúi M-lista situr fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða.
2.Erindisbréf félagsmála- og tómstundanefndar
Málsnúmer 2606163Vakta málsnúmer
Lögð voru fram drög að erindisbréfi félagsmála- og tómstundanefndar. Nefndin samþykkir erindisbréfið samhljóða fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Baldur Hrafn Björnsson vék af fundi að þessum dagskrárlið loknum
3.Beiðni um samstarf vegna Molduxi trail
Málsnúmer 2606135Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Ragnhildi Friðriksdóttur sem óskar, fyrir hönd 550 Rammvilltra, eftir samstarfi við Skagafjörð vegna utanvegahlaupsins Molduxi Trail sem haldið verður 7. ágúst nk. Samstarfið sem óskað er eftir felst í því að þátttakendum í hlaupinu verði veittur frír aðgangur að Sundlaug Sauðárkróks að hlaupi loknu ásamt því að Sundlaug Sauðárkróks verði opin til kl. 22 þennan dag.
Nefndin fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að þátttakendur fái frítt í sund að hlaupi loknu og opnunartími verði lengdur um eina klukkustund eða til kl. 22:00 þann 7. ágúst 2026.
Nefndin fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að þátttakendur fái frítt í sund að hlaupi loknu og opnunartími verði lengdur um eina klukkustund eða til kl. 22:00 þann 7. ágúst 2026.
4.Íþrótta- og leikjanámskeið í Fljótum 2026
Málsnúmer 2606217Vakta málsnúmer
Lögð fram beiðni um styrk vegna íþrótta- og leikjanámskeiða barna í Fljótum. Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar umsókninni og samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð 150.000 krónur til íþrótta- og leikjanámskeiða fyrir börn í Fljótum.
5.Ungt fólk og lýðheilsa 2026
Málsnúmer 2605087Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Ungmennafélagi Íslands. Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.-20. september 2026 í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Blómstrum, styrkjumst og tengjumst.
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og verður áhersla lögð á andlega, líkamlega og félagslega heilsu, tengslamyndun, sjálfsmynd og heilbrigðan lífsstíl í heimi þar sem skjánotkun og áreiti hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf. Óskað er eftir því að ráðstefnan sé kynnt fyrir ungu fólki innan Skagafjarðar og áhugasöm séu hvött til þátttöku.
Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að fela leiðtoga frístunda- og íþróttamála að kynna ráðstefnuna og hvetja ungt fólk í sveitarfélaginu til þátttöku.

6.Fundir félagsmála- og tómstundanefndar á haustönn 2026
Málsnúmer 2606161Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að fundartímum nefndarinnar fyrir haustönn 2026, sem eru eftirfarandi: 20. ágúst, 24. september, 29. október og 19. nóvember. Nefndin samþykkir tillöguna samhljóða með fyrirvara um breytingar.
7.Fundargerðir fagráðs - málefni fatlaðs fólks
Málsnúmer 2601063Vakta málsnúmer
Lagðar fram til kynningar þrjár fundargerðir, frá fundi nr. 48 og 49 frá maí og fundi nr. 50 frá júní sl.
8.Barnaverndarþjónusta Mið - Norðurlands fundargerðir faghóps
Málsnúmer 2301093Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar 69. fundargerð fagráðs Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands frá 15. júní 2026.
9.Trúnaðarbók félagsmála- og tómstundanefndar
Málsnúmer 2601068Vakta málsnúmer
Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið - kl. 15:17.