Fara í efni

Kjör fulltrúa í öldungaráð 2026

Málsnúmer 2605123

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 51. fundur - 01.07.2026

Kjör fulltrúa í öldungaráð til fjöugrra ára, þrír aðalmenn og þrír til vara. Forseti bar upp tillögu um aðalmenn og varamenn þeirra í sömu röð.

Aðalmenn: Jóhanna Björnsdóttir, Merete Rabölle og Sylvía Sif Halldórsdóttir.
Varamenn: Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Sigrún Eva Helgadóttir og Halldór Jón Sigurðsson.

Aðrar tilnefningar komu ekki fram og teljast þau því rétt kjörin.

Öldungaráð - 4. fundur - 27.08.2026

Öldungaráð er skipað sjö fulltrúum. Þrír og þrír til vara eru tilnefndir af Félagi eldri borgara í Skagafirði. Þrír og þrír til vara eru tilnefndir af sveitarstjórn Skagafjarðar. Einn og einn til vara er tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Aðalamenn frá FEBS eru Ingimar Jóhannsson, Gestur Þorsteinsson og Sigurjón Gestsson, til vara Ragna Jóhannsdóttir, Erna Geirsdóttir og Edda Haraldsdóttir. Aðalmenn frá sveitarstjórn eru Jóhanna Björnsdóttir, Merete Rabölle og Silvía Sif Halldórsdóttir, til vara Halldór Jón Sigurðsson, Sveinn Þ. Finster Úlfasson og Sigrún Eva Helgadóttir. Aðalmaður frá HSN er Selma Björt Magnúsdóttir, til vara Kristrún Snjólfsdóttir. Ráðið kýs sér sjálft formann og varaformann. Ingimar Jóhannsson kosinn formaður og Jóhanna Björnsdóttir kosin varaformaður.



Sveitarstjóri setti fund og bauð ráðsfólk velkomið til fyrsta fundar að loknum sveitarstjórnarkosningum. Stýrði lið eitt á dagskrá síðan tók nýkjörinn formaður við fundarstjórn.