Öldungaráð
Dagskrá
1.Kjör fulltrúa í öldungaráð 2026
Málsnúmer 2605123Vakta málsnúmer
2.Samþykkt fyrir öldungaráð Skagafjarðar
Málsnúmer 2608219Vakta málsnúmer
Farið yfir Samþykktir fyrir öldungaráð sveitarfélagsins Skagafjarðar sem eru frá árinu 2022. Ráðið á að koma saman minnst fjórum sinnum á ári. Rætt um verkefni ráðsins og starfið framundan. Formaður lagði til breytingar á 2 gr. samþykktanna, í stað orðalagsins "Seta í öldungaráði er ólaunuð" komi orðalagið "Seta í öldungaráði er launuð" líkt og aðrar nefndir sveitarfélagsins. Tillagan samþykkt með sex atkvæðum. Vísað til félagsmála- og tómstundanefndar.
3.Almennt mál á fundi Öldungaráðs
Málsnúmer 2304080Vakta málsnúmer
Lögð fram sex mál:
1. Stefna í málefnum eldri borgara. Formaður ræddi mikilvægi þess að sveitarfélagið mótaði sér stefnu í málefnum eldri borgara í Skagafirði. Vel var tekið í það, ákveðið að ræða það frekar á næsta fundi ráðsins.
2. Frístundastyrkur fyrir eldri borgara. Formaður ræddi mikilvægi þess að auka þátttöku eldri borgara í skipulagðri heilsueflingu, Skagafjörður er heilsueflandi sveitarfélag. Nefndin hvetur félagsmála- og tómstundanefnd að taka til umfjöllunar hvort skoða eigi að veita frístundastyrk til efnaminni eldri borgara.
3. Dagdvöl aldraðra. Samþykkt að óska eftir tölulegum upplýsingum um umsóknarferli, nýtingu plássa og biðlista.
4. Heimaþjónusta - stuðningsþjónusta. Samþykkt að óska eftir tölulegum upplýsingum um umsóknarferli og biðlista.
5. Matarsendingar í dreifbýli Skagafjarðar. Samþykkt að óska eftir upplýsingum um veitta þjónustu og biðlista.
6. íbúðir fyrir eldri borgara. Rætt hvort möguleiki á sé að unnin verði þarfagreining og gerð könnun á eftirspurn eldra fólks eftir blokkaríbúðum á Sauðárkróki með sameiginlegu þjónusturými og bílageymslu.

Fundi slitið - kl. 17:00.
Sveitarstjóri setti fund og bauð ráðsfólk velkomið til fyrsta fundar að loknum sveitarstjórnarkosningum. Stýrði lið eitt á dagskrá síðan tók nýkjörinn formaður við fundarstjórn.