Fara í efni

Samþykkt fyrir öldungaráð Skagafjarðar

Málsnúmer 2608219

Vakta málsnúmer

Öldungaráð - 4. fundur - 27.08.2026

Farið yfir Samþykktir fyrir öldungaráð sveitarfélagsins Skagafjarðar sem eru frá árinu 2022. Ráðið á að koma saman minnst fjórum sinnum á ári. Rætt um verkefni ráðsins og starfið framundan. Formaður lagði til breytingar á 2 gr. samþykktanna, í stað orðalagsins "Seta í öldungaráði er ólaunuð" komi orðalagið "Seta í öldungaráði er launuð" líkt og aðrar nefndir sveitarfélagsins. Tillagan samþykkt með sex atkvæðum. Vísað til félagsmála- og tómstundanefndar.