Fara í efni

Skipulagsnefnd

94. fundur 26. mars 2026 kl. 13:00 - 15:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki

Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer

Á fundinn komu Viggó Jónsson og Örn Arnarsson (í gegnum fjarfundarbúnað) á fund skipulagsnefndar til að kynna framtíðarsýn þeirra fyrir uppbyggingu á Flæðum á Sauðárkróki og leggja jafnframt fram umsókn um úthlutun tveggja lóða á Flæðum, annars vegar undir byggingu hótels og hins vegar undir byggingu skrifstofuhótels.

Skipulagsnefnd fagnar áhuga á uppbyggingu atvinnustarfsemi og hótelreksturs á Sauðárkróki en bendir á að í því deiliskipulagi sem nú er í vinnslu fyrir Flæðarnar á Sauðárkróki er ekki gert ráð fyrir fleiri byggingarreitum á því svæði en undir byggingu nýs menningarhúss og byggingu á lóð vestan við Faxatorg 1. Skipulagsnefnd lýsir sig reiðubúna til samtals varðandi byggingu skrifstofuhótels og hótels á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að fresta erindi um lóðarumsóknir og óskar eftir frekari gögnum frá umsækjendum í samræmi við umræður á fundinum.

Gestir

  • Viggó Jónsson
  • Örn Arnarsson

2.Umsagnarbeiðni; Endurskoðun aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024, nr. 0825 2023: Lýsing (Nýtt aðalskipulag)

Málsnúmer 2311132Vakta málsnúmer

Hörgársveit óskar eftir umsögn Skagafjarðar vegna kynningar á tillögu (Nýtt aðalskipulag) fyrir Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2024-2044, mál nr. 0825/2023 í Skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2023/825 .
Kynningartími er frá 18.3.2026 til 30.4.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044.

3.Umsagnarbeiðni vegna máls nr 1293 2024 í Skipulagsgátt - Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 (Nýtt aðalskipulag)

Málsnúmer 2410281Vakta málsnúmer

Húnabyggð óskar eftir umsögn Skagafjarðar vegna kynningar á tillögu á vinnslustigi (Nýtt aðalskipulag) fyrir Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037, mál nr. 1293/2024 í Skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1293 .
Kynningartími er frá 12.3.2026 til 2.04.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við vinnslutillögu Aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037.

4.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi leggur fram vinnuskrá dagsett 23.3.2026 (56295501YFIRL Furulundur frumdrög) og (56295501YFIRL Furulundur frumdrög hlin) unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni að skipulagi fyrir Furulund 3,5 og 7 í Varmahlíð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

5.Hofsós (218098) - Umsókn um landskipti, (hólf nr. 23 austan Hofsóss)

Málsnúmer 2506179Vakta málsnúmer

Sigfús Ingi Sigfússon fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir stækkun landeignarinnar Hofsósland 23, landnr. 240949.
Landið Hofsósland 23, landnr. 240949, í Skagafirði er við vegamót Siglufjarðarvegar (76) og Deildardalsvegar (781) og teygir sig til austurs, norðan með Grafará að landamerkjum Hofsóss, landnr. 218098, og Nýlendis, landnr. 146573. Aðkoma er af Deildardalsvegi. Um er að ræða stækkun landeignarinnar til suðurs að landamerkjum Hofsóss, landnr. 218098, og Grafargerðis, landnr. 146527, í Grafará. Stofnuð verður millispildan, Hofsósland 23 millispilda sem verður sameinuð Hofsóslandi 23 undir landnúmerinu 240949.

Byggðarráð Skagafjarðar samþykkti á 185. fundi sínum þann 12.03.2026 að óska eftir landskiptum úr landi Hofsóss L218098, landspildu sem skilgreind er í framlagðri merkjalýsingu og á uppdráttum sem gerður hefur verið af Stoð ehf, verkfræðistofu. "56100506 Hofsósland 23 merkjalýsing" "56100506AFST Hofsósland 23 millispilda S01", "56100506AFST Hofsósland 23 stækkun S02". Gögn dagsett 9. mars 2026.
Landið það sem um ræðir er 1,68 ha eða 16.811,7 m² spilda sunnan Hofsósland 23 L240949 austan Siglufjarðarvegar vestan Nýlendis L146576, að sunnan liggja merkin um Grafarár að merkjum Grafargerðis L146527. Eftir stofnun landsins Hofsósland 23 millispilda verður það sameinuð landinu Hofsósland 23 L240949. Engin mannvirki eru skráð innan útskiptrar spildu. Hlunnindi í Grafará sbr. merkjalýsingu fylgja landskiptum þessum. Hofsós, landnr. 218098, er ekki skráð lögbýli skv. lögbýlaskrá.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti.

6.Suðurbraut 9 - Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2603157Vakta málsnúmer

Reimar Marteinsson fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lóðarframkvæmdum við Suðurbraut 9 á Hofsósi í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

7.Hvammur L146574 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa.

Málsnúmer 2603215Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 16. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Guðmundi Þór Guðmundssyni byggingarfræðingi, f.h. Sölku Völku eldhús ehf. Umsókn um leyfi til að byggja við sumarhús sem stendur á lóðinni Hvammi L146574 í Deildardal.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir eru í verki 0126, númer A01, A02 og A03, dagsettir 30.01.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og jafnframt fela skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum frá umsækjendum.

8.Hólar verkstæði - Beiðni um stofnun lóðar

Málsnúmer 2603233Vakta málsnúmer

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á stofnun lóðarinnar Hólar verkstæði úr jörðinni Hólar L146440 í Hjaltadal, eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti og í merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 11. febrúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda.

Stærð lóðarinnar Hólar verkstæði er 1769,6 m². Lóðin er ein spilda.
Mannvirki sem tilheyra lóðinni Hólar verkstæði eru:
160101 Sýningar- og rannsóknarhúsnæði 1931 389,9 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar.
Lóðin er á svæði merkt S701 - Hólaskóli og Hóladómkirkja.
Mál nr. M003506 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS ásamt beiðni um lóðastofnun (F550).

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

9.Hólar skólahús L146447 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettri afmörkun lóðar

Málsnúmer 2603234Vakta málsnúmer

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Ísland, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á hnitsettum lóðamörkum lóðarinnar Hólar skólahús L146447 í Skagafirði, eins og sýnd eru í meðfylgjandi uppdrætti og merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 21. janúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda. Lóðin hafði áður verið stofnuð en afmörkun hennar lá ekki fyrir.
Hólar skólahús L146447 verður 5.689,55 m² eftir afmörkun.
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Lóðin er á svæði merkt S701 - Hólaskóli og Hóladómkirkja (samfélagsþjónusta).
Mál nr. M003326 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

10.Hólar fjós - Beiðni um stofnun lóðar

Málsnúmer 2603235Vakta málsnúmer

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á stofnun lóðarinnar Hólar fjós úr jörðinni Hólar L146440 í Hjaltadal, eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti og í merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 11. febrúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda.
Stærð lóðarinnar Hólar fjós er 4370,5 m². Lóðin er ein spilda.

Mannvirki sem tilheyra lóðinni Hólar fjós eru:
30101 Gamla fjósið 1948 520,1 m²
100101 Hlaða 1956 136,7 m²
120101 Votheysturn 1950 29 m²
140101 Veitingahús/brugghús 1962 126,8 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar.
Lóðin er á svæði merkt S701 - Hólaskóli og Hóladómkirkja.
Mál nr. M003506 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS ásamt beiðni um lóðastofnun (F550).

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

11.Brúsabyggð 1 L174916, Brúsabyggð 3 L174917, Brúsabyggð 5 L174918 og Brúsabyggð 7 L177377 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettri afmörkun lóða

Málsnúmer 2603236Vakta málsnúmer

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á hnitsettum lóðamörkum lóðanna Brúsabyggð 1 L174916, Brúsabyggð 3 L174917, Brúsabyggð 5 L174918 og Brúsabyggð 7 L177377 í Skagafirði, eins og sýnd eru í meðfylgjandi uppdrætti og merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 21. janúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda. Lóðirnar höfðu allar verið stofnaðar áður, en afmörkun þeirra lá ekki fyrir.
Brúsabyggð 1 L174916 (F2222887) verður eftir afmörkun 438,75 m²
Brúsabyggð 3 L174947 (F2222896) verður eftir afmörkun 336,98 m²
Brúsabyggð 5 L174918 (F2222900) verður eftir afmörkun 399,97 m²
Brúsabyggð 7 L177377 (F2232585) verður eftir afmörkun 400,05 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Lóðirnar eru á svæði sem merkt er IB702 í landnotkunarflokknum íbúðabyggð.
Mál nr. M003327 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

12.Nýtt opinbert samgöngunet fyrir Ísland

Málsnúmer 2603153Vakta málsnúmer

Hjá Náttúrufræðistofnun er unnið að nýju landsþekjandi samgönguneti en verkefnið byggir á samstarfssamningi sem Náttúrufræðistofnun og Vegagerðin gerðu með sér árið 2023. Markmiðið er að koma á fót samræmdri stafrænni vegaþekju fyrir Ísland sem nýtist m.a. fyrir leiðsögukerfi, kortagerð og til umferðarstjórnunar. Markmiðið byggir á áherslum sem koma fram í samgönguáætlun um að bæta þjónustu í grunnnetinu með því að nýta tæknilausnir þ.m.t. upplýsingatækni t.d. við umferðarstjórnun og miðlun upplýsinga til vegfarenda á ferðinni um vegakerfið. En með umferðarstjórnunarkerfi er hægt að koma stafrænum upplýsingum beint til vegfarenda, t.d. um færð, umferð, ástand vega eða aðrar upplýsingar sem varða vegfarendur í rauntíma.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að afhenda umbeðið gögn til Náttúrufræðistofnunnar.

13.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 81

Málsnúmer 2603023FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 81 þann 20.03.2026.

Fundi slitið - kl. 15:15.