Fara í efni

Hólar verkstæði - Beiðni um stofnun lóðar

Málsnúmer 2603233

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 94. fundur - 26.03.2026

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á stofnun lóðarinnar Hólar verkstæði úr jörðinni Hólar L146440 í Hjaltadal, eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti og í merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 11. febrúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda.

Stærð lóðarinnar Hólar verkstæði er 1769,6 m². Lóðin er ein spilda.
Mannvirki sem tilheyra lóðinni Hólar verkstæði eru:
160101 Sýningar- og rannsóknarhúsnæði 1931 389,9 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar.
Lóðin er á svæði merkt S701 - Hólaskóli og Hóladómkirkja.
Mál nr. M003506 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS ásamt beiðni um lóðastofnun (F550).

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 94. fundi skipulagsnefndar frá 26. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á stofnun lóðarinnar Hólar verkstæði úr jörðinni Hólar L146440 í Hjaltadal, eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti og í merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 11. febrúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda.

Stærð lóðarinnar Hólar verkstæði er 1769,6 m². Lóðin er ein spilda.
Mannvirki sem tilheyra lóðinni Hólar verkstæði eru:
160101 Sýningar- og rannsóknarhúsnæði 1931 389,9 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar.
Lóðin er á svæði merkt S701 - Hólaskóli og Hóladómkirkja.
Mál nr. M003506 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS ásamt beiðni um lóðastofnun (F550).

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum erindið eins og það er fyrirlagt.