Hjá Náttúrufræðistofnun er unnið að nýju landsþekjandi samgönguneti en verkefnið byggir á samstarfssamningi sem Náttúrufræðistofnun og Vegagerðin gerðu með sér árið 2023. Markmiðið er að koma á fót samræmdri stafrænni vegaþekju fyrir Ísland sem nýtist m.a. fyrir leiðsögukerfi, kortagerð og til umferðarstjórnunar. Markmiðið byggir á áherslum sem koma fram í samgönguáætlun um að bæta þjónustu í grunnnetinu með því að nýta tæknilausnir þ.m.t. upplýsingatækni t.d. við umferðarstjórnun og miðlun upplýsinga til vegfarenda á ferðinni um vegakerfið. En með umferðarstjórnunarkerfi er hægt að koma stafrænum upplýsingum beint til vegfarenda, t.d. um færð, umferð, ástand vega eða aðrar upplýsingar sem varða vegfarendur í rauntíma.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að afhenda umbeðið gögn til Náttúrufræðistofnunnar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að afhenda umbeðið gögn til Náttúrufræðistofnunnar.