Fara í efni

Brúsabyggð 1 L174916, Brúsabyggð 3 L174917, Brúsabyggð 5 L174918 og Brúsabyggð 7 L177377 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettri afmörkun lóða

Málsnúmer 2603236

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 94. fundur - 26.03.2026

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir óskar eftir, fyrir hönd landeiganda Ríkissjóðs Íslands, samþykki skipulagsnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar á hnitsettum lóðamörkum lóðanna Brúsabyggð 1 L174916, Brúsabyggð 3 L174917, Brúsabyggð 5 L174918 og Brúsabyggð 7 L177377 í Skagafirði, eins og sýnd eru í meðfylgjandi uppdrætti og merkjalýsingu. Merkjalýsingin var unnin 21. janúar 2026 af Ásu Margréti Einarsdóttur, löggiltum merkjalýsanda. Lóðirnar höfðu allar verið stofnaðar áður, en afmörkun þeirra lá ekki fyrir.
Brúsabyggð 1 L174916 (F2222887) verður eftir afmörkun 438,75 m²
Brúsabyggð 3 L174947 (F2222896) verður eftir afmörkun 336,98 m²
Brúsabyggð 5 L174918 (F2222900) verður eftir afmörkun 399,97 m²
Brúsabyggð 7 L177377 (F2232585) verður eftir afmörkun 400,05 m²
Unnið er eftir Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035.
Lóðirnar eru á svæði sem merkt er IB702 í landnotkunarflokknum íbúðabyggð.
Mál nr. M003327 hefur verið stofnað í landeignarskráningarkerfi HMS.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.