Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Skipulagsnefnd - 102
Málsnúmer 2607005FVakta málsnúmer
Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum.
-
Skipulagsnefnd - 102 Árna Ragnarsson arkitekt og Björn Magnús Árnason á Stoð ehf. verkfræðistofu fóru yfir gildandi deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987 sem unnið var af Árna Ragnarssyni og hvaða hugmyndir hafa komið upp í gegnum tíðina fyrir það svæði.
Í framhaldinu fóru þeir Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði og Hannes Högni Vilhjálmsson yfir þrívíddar módel af skipulagssvæðinu og frumniðurstöður úr greiningarvinnu fyrir svæðið.
Farið var yfir næstu skref í skipulagsvinnunni en stefnt er að því að auglýsa skipulagslýsingu haustið 2026.
Magnús Barðdal sveitarstjóri og eftirtaldir úr sveitarstjórn Skagafjarðar sátu fundinn undir þessum fundarlið: Guðlaugur Skúlason (fjarfundarbúnað), Högni Elfar Gylfason, Jóhann Ey Harðardóttir, Sveinn Úlfarsson (fjarfundarbúnað), Einar E. Einarsson (fjarfundarbúnað) og Eyþór Fannar Sveinsson.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum. - 1.2 2410226 Umsagnarbeiðni vegna máls 1264 2024; Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, Lýsing (Nýtt aðalskipulag)Skipulagsnefnd - 102 Dalvíkurbyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við auglýsta skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, nr. 1264/2024 í Skipulagsgáttinni.
(https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264 ).
Kynningartími er frá 26.6.2026 til 16.8.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045. Bókun fundar Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Dalvíkurbyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við auglýsta skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, nr. 1264/2024 í Skipulagsgáttinni.
(https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264 ).
Kynningartími er frá 26.6.2026 til 16.8.2026.
Formaður gerir að tilllögu sinni að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar síðar í dagskrá. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 102 Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 24.06.2026, verknr. SSDS-2203C unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Hönnuðurinn sat fundarliðinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir vinnslutillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega staðsetningu í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins.
Ingvar Daði Jóhannsson fulltrúi Byggðalistans, Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helga Þórsdóttir fulltrúi Framsóknar óska bókað:
Við viljum benda á að vitað er um mismunandi skoðanir varðandi framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki. Vilji er til að auglýsa framkomna vinnslutillögu til að ná fram skýrum vilja almennings og annarra hagsmunaaðila og taka upplýsta ákvörðun varðandi framhaldið eftir auglýsingu vinnslutillögunnar. Bókun fundar Málið tekið fyrir með afbrigðum á 202. fundi byggðarráðs 16. júlí 2026.
-
Skipulagsnefnd - 102 Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Glaumbæ í Skagafirði, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 25.06.2026, verknr. SSDS-2501 unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir Byggðasafn Skagfirðinga.
Hönnuðurinn sat fundarliðinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir vinnslutillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Glaumbæ í Skagafirði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Málið tekið fyrir með afbrigðum á 202. fundi byggðarráðs 16. júlí 2026. -
Skipulagsnefnd - 102 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir "Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki", mál nr. 693/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/693 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 03.06.2026- 24.06.2026.
Alls bárust 6 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum. - 1.6 2607029 Lækur L146417 í Viðvíkursveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum og stofnun landspilduSkipulagsnefnd - 102 Eindís Guðrún Kristjánsdóttir þinglýstur eiganda jarðarinnar Lækur, landnúmer 146417 óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 74200000, dags. 18. júní 2026, og merkjalýsingu dags. 25.06.2026. Hnitsett merki byggja á landamerkjalýsingu no. 377, þinglesin 19. júní 1922, og GPS-mælingu, dags. 18.06.2026. Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus merki.
Þá er óskað eftir heimild til að stofna 34,1 ha (341.350,4 m2) spildu úr landi jarðarinnar, sem Lækjarás, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74200000 útg. 18. júní 2026 og merkjalýsingu, dags. 25. júní 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Merkjalýsing var unnin af Birni Magnúsi Árnasyni, Stoð verkfræðistofu ehf.
Sótt er um að útskipt spilda verði skráð sem Annað land (80).
Öll hlunnindi tilheyra áfram Læk landnr. 146417.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Læk, landnr. 146417.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003985.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og stofnun nýrrar landspildu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi. Bókun fundar Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Formaður gerir að tillögu sinni að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 102 Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda. Bókun fundar Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Formaður gerir að tillögu sinni að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 102 Margrét Eva Ásgeirsdóttir sækir um einbýlishúsalóðina Birkimel 54 í Varmahlíð.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda. Bókun fundar Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 102 Pétur Vopni Sigurðsson sækir um hesthúsalóðina við Flæðagerði 27 á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda. Bókun fundar Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 102 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 88 þann 26.06.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 102. fundar skipulagsnefndar staðfest á 203. fundi byggðarráðs 21. júlí 2026 með þremur atkvæðum.
2.Beiðni um viðræður varðandi landamerki að Sjávarborg 1, 2, og 3
Málsnúmer 1907144Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi vegna merkjalýsingar og afstöðuuppdráttar, dags. 7. júlí 2026, fyrir landamerki Sauðárkróks og Sauðárkróksflugvallar gagnvart Sjávarborg I, II og III.
Fram kemur að merkjalýsingin byggi á sáttalínu allra aðliggjandi landeigenda sem fengin hafi verið með yfirferð fyrirliggjandi gagna og fundum með landeigendum. Merkjalýsingin liggur fyrir með undirskriftum allra landeigenda Sjávarborgar I, II og III og er tilbúin til áritunar af hálfu Skagafjarðar sem landeiganda Sauðárkrókslands og Sauðárkróksflugvallar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu og heimilar sveitarstjóra að undirrita hana fyrir hönd Skagafjarðar.

3.Umsókn um úthlutun lóða á Flæðum - Sauðárkróki
Málsnúmer 2602106Vakta málsnúmer
Vísað frá 51. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026 til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Vísað frá 101. fundi skipulagsnefndar frá 25. júní sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Viggó Jónsson, Örn Arnarson, Elfar Már Viggósson og Hreiðar Orri Arnarson óska með eftir úthlutun tveggja lóða í miðbæ Sauðárkróks í samræmi við reglur um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt 8.1. gr. reglnanna er sveitarstjórn heimilt, ef málefnaleg rök eru til þess, að veita vilyrði fyrir lóðum/svæðum fyrir atvinnustarfsemi án auglýsingar, innan skipulagðra svæða eða á óskipulögðum svæðum.
Sótt er um eftirtaldar tvær lóðir:
Óstofnaða lóð norðan og vestan til við Sundlaug Sauðárkróks og Faxatorg 2, sem er vestan við Faxatorg 1 - með hugsanlegri sameiningu Faxatorg 1 og 2.
Skipulagsnefnd fagnar framkomnum áhuga á uppbyggingu á hóteli og skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki og vísar málinu til sveitarstjórnar sbr. grein 8.1. í reglum um úthlutun byggingarlóða í Sveitarfélaginu Skagafirði frá 14.09.2022."
Forseti gerði að tillögu sinni að málinu yrði vísað til byggðarráðs.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með átta atkvæðum.
Byggðarráð þakkar fyrir framlagða umsókn um úthlutun tveggja lóða á Sauðárkróki og fagnar þeim áhuga sem umsækjendur sýna uppbyggingu atvinnustarfsemi og ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Umsóknin er tvíþætt og er því afgreidd í tveimur aðskildum liðum.
1. Óstofnuð lóð norðan og vestan við Sundlaug Sauðárkróks
Svæðið sem um ræðir er innan deiliskipulagðs svæðis þar sem ekki er gert ráð fyrir frekara byggingarmagni eða nýjum byggingarreit fyrir þá starfsemi sem umsóknin tekur til. Fyrirhuguð staðsetning er jafnframt á mikilvægu svæði milli sundlaugarinnar og lóðar undir fyrirhugað menningarhús og er ekki talin samræmast þeirri heildarsýn sem lögð hefur verið til grundvallar við þróun svæðisins.
Í umsókn er vísað til 8. gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða. Byggðarráð telur að heimildarákvæði greinarinnar sé fyrst og fremst ætlað að skapa möguleika til undantekninga þegar sérstakar málefnalegar ástæður eða sérstakar aðstæður réttlæta frávik frá hefðbundnu úthlutunarferli. Byggðarráð telur ekki að slíkar sérstakar aðstæður séu fyrir hendi í þessu tilviki sem réttlæta úthlutun lóðar á svæði þar sem hvorki er gert ráð fyrir byggingarreit né frekari uppbyggingu samkvæmt gildandi skipulagi.
Þá telur byggðarráð að viðbótarbygging á þessu svæði falli illa að þeirri ásýnd og skipulagslegu heild sem verið er að móta á svæðinu í kringum sundlaugina og fyrirhugað menningarhús. Ekki verður séð að byggingin samræmist þeim markmiðum sem liggja að baki uppbyggingu svæðisins eða bæti heildarmynd þess.
Með vísan til framangreinds samþykkir byggðarráð samhljóða að hafna erindinu.
2. Faxatorg 2 og möguleg sameining Faxatorgs 1 og 2
Byggðarráð tekur mjög jákvætt í þann áhuga sem umsækjendur sýna uppbyggingu hótels á Sauðárkróki. Ljóst er að þörf er fyrir aukið gistirými í sveitarfélaginu og telur byggðarráð að frekari uppbygging á því sviði geti haft jákvæð áhrif á atvinnulíf, ferðaþjónustu og þróun miðbæjarins.
Hins vegar vísar byggðarráð til fyrri afgreiðslna skipulagsnefndar vegna fyrri erinda frá umsækjendum þar sem umbeðinni staðsetningu fyrir hótelbyggingu á Faxatorgi var hafnað. Í þeirri afgreiðslu var sérstaklega vísað til áhrifa fyrirhugaðs byggingarmagns og hæðar húss á nærliggjandi byggð, meðal annars vegna skuggavarps á Suðurgötu.
Þá liggja fyrir skipulagsforsendur fyrir lóðinni Faxatorgi 2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Lóðin er 1.151 m² að stærð en byggingarreitur hennar er 716 m². Hámarks byggingarmagn á lóðinni er 1.000 m², hámarks nýtingarhlutfall 0,87, hámarkshæð byggingar 8 metrar og hámarksfjöldi hæða tvær. Byggðarráð telur að þær hugmyndir sem fram koma í umsókninni rúmist ekki innan þessara skipulagsforsendna og að lóðin geti ekki borið það byggingarmagn og þá hæð sem umsækjendur horfa til.
Jafnframt er í umsókn gert ráð fyrir hugsanlegri sameiningu lóðanna Faxatorg 1 og Faxatorg 2. Sveitarfélagið er eigandi að fasteigninni á Faxatorgi 1 og er sú eign nú í virku söluferli. Ekki er því unnt að fallast á slíka sameiningu eða skuldbinda sveitarfélagið til ráðstöfunar eignarinnar með þeim hætti, enda myndi það hafa veruleg áhrif á söluferli hennar, nýtingarmöguleika og verðmæti.
Byggðarráð lýsir þó yfir vilja til áframhaldandi samtals við umsækjendur um uppbyggingu hótels á Sauðárkróki og er reiðubúið til að vinna með þeim að því að finna hentugri staðsetningu fyrir verkefnið í samræmi við skipulagsforsendur sveitarfélagsins og í góðu samráði við umsækjendur.

4.Umsagnarbeiðni vegna máls 1264 2024; Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, Lýsing (Nýtt aðalskipulag)
Málsnúmer 2410226Vakta málsnúmer
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Dalvíkurbyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við auglýsta skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, nr. 1264/2024 í Skipulagsgáttinni.
(https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264 ).
Kynningartími er frá 26.6.2026 til 16.8.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.

5.Lækur L146417 í Viðvíkursveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum og stofnun landspildu
Málsnúmer 2607029Vakta málsnúmer
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Eindís Guðrún Kristjánsdóttir þinglýstur eiganda jarðarinnar Lækur, landnúmer 146417 óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 74200000, dags. 18. júní 2026, og merkjalýsingu dags. 25.06.2026. Hnitsett merki byggja á landamerkjalýsingu no. 377, þinglesin 19. júní 1922, og GPS-mælingu, dags. 18.06.2026. Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus merki.
Þá er óskað eftir heimild til að stofna 34,1 ha (341.350,4 m2) spildu úr landi jarðarinnar, sem Lækjarás, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74200000 útg. 18. júní 2026 og merkjalýsingu, dags. 25. júní 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Merkjalýsing var unnin af Birni Magnúsi Árnasyni, Stoð verkfræðistofu ehf.
Sótt er um að útskipt spilda verði skráð sem Annað land (80).
Öll hlunnindi tilheyra áfram Læk landnr. 146417.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Læk, landnr. 146417.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003985.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og stofnun nýrrar landspildu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.
Byggðarráð staðfestir samhljóða hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og stofnun nýrrar landspildu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

6.Mælifellsá L146221 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis
Málsnúmer 2606240Vakta málsnúmer
Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda.
Byggðarráðs samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu máls og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

7.Kjör fulltrúa í notendaráð - þjónusta við fatlað fólk 2026 - ógilding
Málsnúmer 2605124Vakta málsnúmer
Á 36. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026 var kosið í notendaráð í þjónustu við fatlað fólk til fjögurra ára. Notendaráð í þjónustu við fatlað fólk er ekki lengur starfandi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fella úr gildi kjör fulltrúa í notendaráð í þjónustu við fatlað fólk sem fram fór á 36. fundi sveitarstjórnar þann 1. júlí 2026.

8.Kjör fulltrúa í þjónusturáð - þjónusta við fatlað fólk Nl.v 2026 - ógilding
Málsnúmer 2605125Vakta málsnúmer
Á 36. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026 var kosið í þjónusturáð. Þjónusturáð er ekki lengur starfandi samkvæmt gildandi samstarfssamningi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fella úr gildi kjör fulltrúa í þjónusturáð sem fram fór á 36. fundi sveitarstjórnar þann 1. júlí 2026.

9.Samráð; Áform um breytingu á lögum nr. 38 2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Málsnúmer 2607072Vakta málsnúmer
Mál lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:30.