Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Gamli bærinn Sauðárkróki - Deiliskipulag
Málsnúmer 2607033Vakta málsnúmer
Gestir
- Árni Ragnarsson
- Björn Magnús Árnason
- Páll Jakob Líndal
- Hannes Vilhjálmsson
2.Umsagnarbeiðni vegna máls 1264 2024; Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, Lýsing (Nýtt aðalskipulag)
Málsnúmer 2410226Vakta málsnúmer
Dalvíkurbyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við auglýsta skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045, nr. 1264/2024 í Skipulagsgáttinni.
(https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264 ).
Kynningartími er frá 26.6.2026 til 16.8.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu fyrir nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.

3.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 24.06.2026, verknr. SSDS-2203C unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Hönnuðurinn sat fundarliðinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir vinnslutillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Tjaldsvæðið við Borgargerði á Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
Tel ég framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki vera á Nöfunum, í ljósi útivistarperlunnar sem þar liggur. Einnig tel ég þessa fyrirhuguðu staðsetningu tæplega rekstrarhæfa og óheppilega staðsetningu í ljósi núverandi reksturs og háhraða umferðar í nálægð svæðisins.
Ingvar Daði Jóhannsson fulltrúi Byggðalistans, Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helga Þórsdóttir fulltrúi Framsóknar óska bókað:
Við viljum benda á að vitað er um mismunandi skoðanir varðandi framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki. Vilji er til að auglýsa framkomna vinnslutillögu til að ná fram skýrum vilja almennings og annarra hagsmunaaðila og taka upplýsta ákvörðun varðandi framhaldið eftir auglýsingu vinnslutillögunnar.

- Arnar Birgir Ólafsson
4.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag
Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga á vinnslustigi fyrir Glaumbæ í Skagafirði, uppdráttur ásamt greinargerð dags. 25.06.2026, verknr. SSDS-2501 unnin af Arnari Birgi Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands fyrir Byggðasafn Skagfirðinga.
Hönnuðurinn sat fundarliðinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir vinnslutillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagsvinnslutillöguna fyrir "Glaumbæ í Skagafirði" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Freyjugötureitur suður, Sauðárkróki - Deiliskipulag
Málsnúmer 2605113Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir "Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki", mál nr. 693/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/693 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 03.06.2026- 24.06.2026.
Alls bárust 6 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Alls bárust 6 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Gestir
- Björn Magnús Árnason
6.Lækur L146417 í Viðvíkursveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum og stofnun landspildu
Málsnúmer 2607029Vakta málsnúmer
Eindís Guðrún Kristjánsdóttir þinglýstur eiganda jarðarinnar Lækur, landnúmer 146417 óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 74200000, dags. 18. júní 2026, og merkjalýsingu dags. 25.06.2026. Hnitsett merki byggja á landamerkjalýsingu no. 377, þinglesin 19. júní 1922, og GPS-mælingu, dags. 18.06.2026. Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus merki.
Þá er óskað eftir heimild til að stofna 34,1 ha (341.350,4 m2) spildu úr landi jarðarinnar, sem Lækjarás, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74200000 útg. 18. júní 2026 og merkjalýsingu, dags. 25. júní 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Merkjalýsing var unnin af Birni Magnúsi Árnasyni, Stoð verkfræðistofu ehf.
Sótt er um að útskipt spilda verði skráð sem Annað land (80).
Öll hlunnindi tilheyra áfram Læk landnr. 146417.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Læk, landnr. 146417.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003985.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og stofnun nýrrar landspildu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

7.Mælifellsá L146221 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis
Málsnúmer 2606240Vakta málsnúmer
Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda.

8.Birkimelur 54 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2606202Vakta málsnúmer
Margrét Eva Ásgeirsdóttir sækir um einbýlishúsalóðina Birkimel 54 í Varmahlíð.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.

9.Flæðigerði 27 - Umsókn um byggingarlóð
Málsnúmer 2607031Vakta málsnúmer
Pétur Vopni Sigurðsson sækir um hesthúsalóðina við Flæðagerði 27 á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjanda.
10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 88
Málsnúmer 2606022FVakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 88 þann 26.06.2026.
Fundi slitið - kl. 16:30.
Í framhaldinu fóru þeir Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði og Hannes Högni Vilhjálmsson yfir þrívíddar módel af skipulagssvæðinu og frumniðurstöður úr greiningarvinnu fyrir svæðið.
Farið var yfir næstu skref í skipulagsvinnunni en stefnt er að því að auglýsa skipulagslýsingu haustið 2026.
Magnús Barðdal sveitarstjóri og eftirtaldir úr sveitarstjórn Skagafjarðar sátu fundinn undir þessum fundarlið: Guðlaugur Skúlason (fjarfundarbúnað), Högni Elfar Gylfason, Jóhann Ey Harðardóttir, Sveinn Úlfarsson (fjarfundarbúnað), Einar E. Einarsson (fjarfundarbúnað) og Eyþór Fannar Sveinsson.