Fara í efni

Lækur L146417 í Viðvíkursveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum og stofnun landspildu

Málsnúmer 2607029

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 102. fundur - 09.07.2026

Eindís Guðrún Kristjánsdóttir þinglýstur eiganda jarðarinnar Lækur, landnúmer 146417 óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 74200000, dags. 18. júní 2026, og merkjalýsingu dags. 25.06.2026. Hnitsett merki byggja á landamerkjalýsingu no. 377, þinglesin 19. júní 1922, og GPS-mælingu, dags. 18.06.2026. Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus merki.
Þá er óskað eftir heimild til að stofna 34,1 ha (341.350,4 m2) spildu úr landi jarðarinnar, sem Lækjarás, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74200000 útg. 18. júní 2026 og merkjalýsingu, dags. 25. júní 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Merkjalýsing var unnin af Birni Magnúsi Árnasyni, Stoð verkfræðistofu ehf.
Sótt er um að útskipt spilda verði skráð sem Annað land (80).
Öll hlunnindi tilheyra áfram Læk landnr. 146417.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Læk, landnr. 146417.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003985.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu og stofnun nýrrar landspildu og samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.