Fara í efni

Mælifellsá L146221 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis

Málsnúmer 2606240

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 102. fundur - 09.07.2026

Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda.

Byggðarráð Skagafjarðar - 203. fundur - 21.07.2026

Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:

Byggðarráðs samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu máls og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 53. fundur - 16.09.2026

Vísað frá 203. fundi byggðarráðs frá 21. júlí sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Vísað frá 102. fundi skipulagsnefndar frá 9. júlí 2026 sl. til afgreiðslu byggðarráðs, þannig bókað:
Ingunn Sandra Arnþórsdóttir f.h. Lands og skógar í samstarfi við hlutaðeigandi landeigendur óska eftir framkvæmdarleyfi frá sveitastjórn Skagafjarðar fyrir fyrirhugaðri framkvæmd á endurheimt votlendis á jörðinni Mælifellsá landnr. 146221 í sveitarfélaginu Skagafirði sbr. framlagðan uppdrátt dags. 22.6.2026 sem gerður er af umsækjanda.
Lýsing framkvæmda:
Í umsókn kemur m.a. eftirfarandi fram.
„Fyrirhugað endurheimtarsvæði er 40 ha að stærð og er eingöngu framkvæmt utan fuglavarpstíma, síðsumars eða að hausti. Verkið er unnið í samstarfi við landeigendur.
Áhrif framkvæmdar eru þau að vatnsstaða svæðisins hækkar sem veldur því að framræst mýrlendi endurheimtist og þar með frjósemi vistkerfisins, vatnsgæði og vatnsmiðlun ásamt búsvæði lífvera frá örverum til fugla. Áhrif á náttúru og
vatnsbúskap svæðisins eru því jákvæð. Auk þess stöðvast losun gróðurhúsalofttegunda sem hefur verið virk vegna framræslu svæðisins.
Fyrirhugað er að fylla upp í/stífla 3600 metra af skurðum. Áhersla verður lögð á að vanda til verka, þjappa efninu vel ofan í skurðstæðið svo að fyllingar skolist ekki til og að öryggi manna og dýra sé gætt. Eins á að taka til hliðar gróður úr skurðum og ofan af ruðningum til að þekja yfirborð rasksvæða og flýta þannig fyrir uppgræðslu þeirra.
Verkið verður unnið með beltagröfu og unnið út frá útgefnum leiðbeiningum Lands og skógar fyrir framkvæmdaraðila um endurheimt votlendis.
Engar skráðar fornminjar eru á svæðinu samkvæmt minjaskrá.
Framkvæmdin er ekki talin hafa áhrif á byggingar í nágrenni svæðisins. Ekki verður ráðist í framkvæmdir við skurði sem liggja meðfram veginum sem liggur um svæðið og er því ekki gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á hann. Ekkert ræktað land er innan þess svæðis sem framkvæmdin nær til. Ekki er gert ráð fyrir að framkvæmdin hafi áhrif á verndarsvæði, né er svæðið inn á náttúruminjaskrá.“

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að framlögðu samþykki landeigenda.

Byggðarráðs samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu máls og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram."

Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna endurheimtar votlendis var upphaflega tekin fyrir hjá skipulagsnefnd Skagafjarðar. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar fór málið til afgreiðslu byggðarráðs, sem ákvað að fresta endanlegri afgreiðslu þess og fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og vinna málið áfram.

Við áframhaldandi meðferð málsins leitaði sveitarfélagið eftir leiðbeiningum frá HMS um hvort framkvæmdin væri háð málsmeðferð samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í svari HMS kom fram að framkvæmdin félli ekki undir þau lög, en bent var á að kanna þyrfti hvort tilefni væri til mats á áhrifum framkvæmdarinnar á vatnshlot.

Að fengnum þeim upplýsingum var leitað til Umhverfis- og orkustofnunar. Þar kom fram að ef framkvæmdin gæti haft bein eða óbein áhrif á vatnshlot bæri að meta þau áhrif áður en leyfi yrði veitt. Að öðru leyti væri framkvæmdin ekki háð leyfisveitingu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af þessum svörum óskaði sveitarfélagið Skagafjörður eftir afstöðu Lands og skógar til þess hvort fyrirhuguð framkvæmd sé talin hafa áhrif á vatnshlot. Afstaða Lands og skógar er sú að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki talin hafa áhrif á vatnshlot Mælifellsár í þeim skilningi að hún breyti vatnasviði þess eða leiði vatn frá vatnshlotinu.

Fyrir liggur samningur um endurheimt votlendis við landeigendur.

Högni Elfar Gylfason kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Forseti, kæru sveitarstjórnarfulltrúar.
Hér er verið að afgreiða umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis á einkalandi að Mælifellsá hér í Skagafirði. Eignarrétt landeigenda og ákvarðanir þeirra um landnotkun ber alla jafna að virða.
Að því sögðu hef ég miklar efasemdir um að stofnanir ríkisins hvetji til slíkra framkvæmda sem hafa í besta falli óljósan ávinning og leggi að auki til þeirra stórar fjárhæðir úr vösum skattgreiðenda.
Ég mun því ekki greiða atkvæði um veitingu framkvæmdaleyfisins og sit hjá við atkvæðagreiðsluna."

Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum samþykkir sveitarstjórn með átta atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi. Högni Elfar Gylfason situr hjá við afgreiðslu málsins.