Fara í efni

Ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands vegna fyrirhugaðrar breytingar á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar

Málsnúmer 2603299

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 189. fundur - 08.04.2026

Lagt fram til kynningar bréf frá Skógfræktarfélagi Íslands, dagsett 28. mars 2026. Í bréfinu er ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands komið á framfæri. Ályktun fundarins beinist að breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj.949).

Leggst fulltrúafundur Skógræktarfélgsins gegn því að mörk tilkynningarskyldu verði lækkuð úr 200 hekturum niður í 100 hektara og telur slíkt vera afturför í viðleitni til eflingar skógræktar og landgæða á Íslandi.

Skipulagsnefnd - 95. fundur - 16.04.2026

Lagt fram til kynningar bréf frá Skógræktarfélagi Íslands, dagsett 28. mars 2026. Í bréfinu er ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands komið á framfæri. Ályktun fundarins beinist að breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj.949). Leggst fulltrúafundur Skógræktarfélagsins gegn því að mörk tilkynningarskyldu verði lækkuð úr 200 hekturum niður í 100 hektara og telur slíkt vera afturför í viðleitni til eflingar skógræktar og landgæða á Íslandi.