Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

189. fundur 08. apríl 2026 kl. 08:00 - 09:05 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

2.Ársfundur Stapa 2026

Málsnúmer 2603313Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 27. mars 2026 frá Stapa lífeyrissjóði, þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins árið 2026 mánudaginn 27. apríl nk. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri kl. 14:00.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sæki fundinn fyrir hönd Skagafjarðar.

3.Umsagnarbeiðni; Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Málsnúmer 2603276Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 565.mál: Verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 14. apríl nk.

Meirihluti byggðarráðs samþykkir eftirfarandi umsögn: Markmið íslenskra stjórnvalda um orkuskipti, er að Ísland skuli ná kolefnishlutleysi og að fullum orkuskiptum skuli náð eigi síðar en árið 2040. Rétt er að benda á að framboð raforku í dag nær engan veginn að fullnægja eftirspurn eftir henni og að einnig er mikill munur á milli landshluta hvað varðar aðgengi að orku. Þar ræður fjarlægð frá virkjunum og flutningskerfið mestu.
Í Skagafirði er hvoru tveggja andsnúið íbúum og atvinnulífi héraðsins, þ.e.a.s raforkuframleiðsla á svæðinu er vart mælanleg og flutningskerfið í gegnum fjörðinn er bæði gamalt og fulllestað. Framboð af raforku umfram það magn sem notað er í dag er því mjög takmarkað. Ástæða þess að raforkuframleiðsla á svæðinu er lítil er að fáir álitlegir vatnsaflsvirkjunarkostir sem framleiða meira en 1 MW er hér að finna. Stærri virkjunarkostir eins og Skatastaðavirkjun eða Villinganesvirkjun hafa verið í afar löngu matsferli í rammaáætlun sem ekki sér fyrir endann á.
Meirihluti byggðarráðs Skagafjarðar fagnar áformum um einföldun og flýtingu málsmeðferðar vindorkukosta en hefur efasemdir um að núverandi ferli rammaáætlunar stuðli að slíkri niðurstöðu. Með því að opna á þann möguleika að stytta og einfalda ferlið fyrir byggingu vindmylla upp að ákveðinni stærð gæti ferlið þó styst hvað það varðar og möguleikar sveitarfélaga til að efla orkuframleiðslu á eigin svæði aukist. Það er jákvætt, ekki síst fyrir sveitarfélög eins og Skagafjörð, þar sem aðgengi að aukinni raforku er mjög takmarkað.

Álfhildur Leifsdóttir, fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra taka undir mikilvægi þess að sett sé heildstæð stefna um vernd og orkunýtingu landsvæða með lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Heildarsýn sem þessi er forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um nýtingu náttúruauðlinda. Sérstaklega er fagnaðarefni að unnið sé að því að setja vindorku í skýrari farveg innan rammaáætlunar. Hins vegar er brýnt að tryggja að slík uppbygging taki fullt tillit til umhverfisáhrifa, þar á meðal rask á landsvæðum og áhrif á lífríki.
Fulltrúar VG og óháðra hafa þó áhyggjur af því að breytingarnar leggi áherslu á aukna orkuöflun á kostnað verndar. Mikilvægt er að rammaáætlun verði ekki tæki til að hraða nýtingu heldur faglegt verkfæri þar sem náttúruvernd og langtímahagsmunir samfélagsins vega þyngst.
Nauðsynlegt er að tryggja gagnsæi og faglegt sjálfstæði í vinnslu og ákvarðanatöku, þannig að almenningur og hagaðilar geti treyst því að mat á virkjunarkostum byggi á vísindalegum forsendum en ekki skammtímahagsmunum og vekjum við athygli á því að ákvæði 10. gr. veitir ráðherra verulegt svigrúm til að hafa áhrif á framsetningu og framvindu rammaáætlunar. Í ljósi þess að áætlunin á að byggja á faglegu og vísindalegu mati er mikilvægt að tryggja skýrt aðskilnað milli faglegra niðurstaðna og pólitískrar ákvarðanatöku."

4.Samráð; Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna

Málsnúmer 2603227Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 65/2026, "Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna". Umsagnarfrestur er til og með 23.04.2026.

5.Ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands vegna fyrirhugaðrar breytingar á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar

Málsnúmer 2603299Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Skógfræktarfélagi Íslands, dagsett 28. mars 2026. Í bréfinu er ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands komið á framfæri. Ályktun fundarins beinist að breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj.949).

Leggst fulltrúafundur Skógræktarfélgsins gegn því að mörk tilkynningarskyldu verði lækkuð úr 200 hekturum niður í 100 hektara og telur slíkt vera afturför í viðleitni til eflingar skógræktar og landgæða á Íslandi.

Fundi slitið - kl. 09:05.