Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag
Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer
2.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði, mál nr. 3/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/3 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 01.07.2026- 15.08.2026 og bárust 6 umsagnir.
Einnig lagður fram afstöðuuppdráttur dags. 30.07.2026 og minnisblað "Jarðvegskönnun á íbúðarbyggðarsvæði nr. ÍB-404 á Sauðárkróki" dags. 4. ágúst 2026, vegna jarðvegskönnunar við Eyrartún og Gilstún sem unnin var samhliða auglýsingu á vinnslutillögu deiliskipulags Laufblaðsins.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins.

Gestir
- Björn Magnús Árnason
3.Tjaldsvæði við Borgargerði - Deiliskipulag
Málsnúmer 2602204Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir "Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki", mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 22.07.2026- 16.08.2026, alls bárust 4 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.

- Arnar Birgir Ólafsson
4.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag
Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer
Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Skagafirði", mál nr. 1641/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1641 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 22.07.2026- 16.08.2026, alls bárust 7 umsagnir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Gestir
- Arnar Birgir Ólafsson
5.Syðri-Hofdalir L146421) í Hofstaðaplássi - Deiliskipulag
Málsnúmer 2608158Vakta málsnúmer
Björn Magnús Árnason á Stoð ehf. verkfræðistofu f.h. Atla Más Traustasonar, Ingibjargar Klöru Helgadóttur, Ingibjargar Aadnegard og Trausta Kristjánssonar, skráðra eigenda Hofdalabúsins ehf., þinglýsts eiganda Syðri-Hofdala, landnr. 146421, óska eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag fyrir hluta jarðarinnar á kostnað landeiganda, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er skipulagslýsing, útg. 1.0, dags. 05.08.26, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu skipulagsverkefni, helstu forsendum og viðfangsefnum. Í meðfylgjandi skipulagslýsingu er sýnd afmörkun skipulagssvæðis. Skipulagslýsing er unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því, að fengnu samþykki skipulagsnefndar og sveitarstjórnar, að meðfylgjandi skipulagslýsing fái kynningu skv. 5.2.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Skipulagssvæðið er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og verður tillaga að deiliskipulagi unnin á grundvelli þess.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að heimila umsækjendum að vinna deiliskipulagstillögu á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja skipulagslýsinguna fyrir Syðri-Hofdali, í Viðvíkursveit, Skagafirði og senda hana til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til umsagnar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að lýsingin verði kynnt almenningi skv. sömu grein.

6.Sauðárhlíð lóð nr. 70 - Fyrirspurn til skipulagsnefndar
Málsnúmer 2608157Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi Róberts Óttarssonar dags. 13.08.2026 fyrir hönd eigenda Sauðár, lóð 70 við Sauðárhlíð á Sauðárkróki þar sem nú er rekinn veitingarstaður.
Þar m.a. segir:
1. Með tilliti til tilvonandi skipulags á svæðinu í kring er það öruggt mál að það verður ekki gerð endanleg lausn á aðkomu að Sauðá og Litla Skógi fyrr en eftir a.m.k. tvö ár þá viljum við fara fram á að það verði gerð einhver lausn á aðgengi til bráðabirgðar þ.e. að heimilað verði að aka inn á stæði við Sauðá og leggja þar bifreiðum. Teljum við að það verði minni hætta fyrir akandi og gangandi vegfarendur að heimilt verði að aka inn á stæði heldur en að beina fólki á stæði hjá verknáms eða bóknámshúsi FNV og þá að fólk gangi yfir götuna í brekku og ekki nein gangbraut í nágreninu og þar af leiðandi sé fólk hlaupandi yfir götuna eins og reyndin er í dag. Það mætti útfæra leyfið t.d. með því að innkeyrsla sé bara heimil eftir kl 16.00 eða 17.00 þá er skólatími búinn og minni hætta á gangandi vegfarendum og eins mætti einungis heimila inn akstur með beygju til hægri þ.e. þegar ekið er upp brekkuna en ekki þegar ekið er niður brekkuna og að hægri beygja sé einungis leyfð þegar ekið er frá Sauðá.
Við erum tilbúin að koma að þeim lausnum sem þarf að leysa til að þetta geti orðið að veruleika.
Rekstraraðilar að veitingahúsinu Sauðá hafa tjáð eigendum að lokun stæðisins hafi komið umtalsvert niður á rekstri staðarins í sumar þar sem að viðskiptavinir telji staðinn lokaðan eftir að lokun var sett á við innkeyrslu á staðinn og á það sér í lagi við erlent ferðafólk sem hefur undrað sig á þessu og snúið frá.
2. Jafnframt förum við fram á að lóðarleigusamningur sá sem eru á lóð nr. 70 við
Sauðárhlíð sem dagsettur er 10. júní 2020 verði felldur úr gildi og að lóðin falli eins
og aðrar lóðin undir almennar reglur um lóðir og að gerður verði nýr
lóðarleigusamningur.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að taka erindið til frekari skoðunar og felur skipulagsfulltrúa að fá umferðarsérfræðing til að vinna minnisblað að tillögu öruggri lausn við umrædda innkeyrslu á Sauðárhlíð, lóð 70.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að hefja deiliskipulagsvinnu á svæðinu með tilliti til nýrrar landnotkunar í aðalskipulagi.
Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins víkur af fundi við afgreiðslu erindisins og Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað.

7.Víðidalur 2 L192872 - Umsókn um stækkun á lóð og byggingarreit
Málsnúmer 2608054Vakta málsnúmer
Pétur Helgi Stefánsson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir þinglýstir eigendur Víðidals 1 (L240159) og Aron Pétursson og Guðmunda Steina Jósefsdóttir eigendur Víðidals 2 (L192872), óska eftir heimild til þess að stækka bæði lóðina Víðidalur 1 auk þess að stækka byggingarreit á lóðinni, hvort tveggja um 3,0 m til vesturs.
Framlagðir afstöðuuppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Uppdrættirnir eru eftirfarandi:
1.
Uppdráttur nr. S-101 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025.
2.
Uppdráttur nr. S-101 B1 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025, með breytingu nr. 1 dags. 28. júlí 2026.
3.
Uppdráttur nr. S-102 í verki nr. 7730-0403.
Eftirfarandi kemur m.a. fram í erindinu:
"Stækkun lóðarinnar Víðidalur 1 gerist með þeim hætti að skipt er 102 m2 millispildu úr landi Víðidals 2, og hún svo sameinuð lóðinni. Víðidalur 1 er 1.088 m2 fyrir breytingarnar, verður 1.190 m2 eftir stækkun.
Lóðin Víðidalur 1 er skráð íbúðarhúsalóð, og verður svo áfram. Á lóðinni er þegar samþykktur byggingarreitur fyrir íbúðarhús, garðskála og bílgeymslu, óskað er því að hann stækki um 3,0 m til vesturs, líkt og lóðin.
Landskiptin samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Landskiptin hafa engin áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Ekkert ræktað land er innan útskiptrar lóðar. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar lóðar.
Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is."
Fyrirliggur jákvæð umsögn RARIK vegna nálægðar byggingarreits við raflínur, þar sem m.a. kemur fram:
Varðandi fyrirhugaða framkvæmd námunda við raflínur þá er gott að horfa á leiðbeiningar um vinnu í námunda við háspennulínur sjá hér: https://hms.is/haspenna-lifshaetta .
Gæta þarf fyllstu varúðar ef unnið er með stórvirkar vinnuvélar eins og krana eða stórar gröfur nálægt línunni til að tryggja að tækin fari ekki inn fyrir hættumörk. Hættumörk koma fram í leiðbeiningunum.
Rarik óskar eftir að haft verði samband tímanlega við Rarik áður en að framkvæmdum kemur.
Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og jafnframt samþykkja umbeðna stækkun á byggingarreit.

8.Huldulandi í Hegranesi L223299 - Umsókn um stækkun byggingarreits
Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer
Pálmi Jónsson og María Eymundsdóttir landeigendur Huldulands í Hegranesi L223299 óska eftir stækkun byggingarreits fyrir framleiðslueldhús.
Framleiðslueldhúsið verður um 40 fermetrar, yrði nýtingahlutfall byggingareitsins með eldhúsinu og öðrum byggingum sem er nú þegar búið að byggja innan hans undir 2,5%. Hámarkshæð eldhúsins 4 m. Fjarlægð frá næsta húsi innan Huldulands er ríflega 12 m.
Byggja á á landi sem telst til ræktunarflokks 4 og nýtist því illa eða að mjög takmörkuðu leiti til ræktunar. Framkvæmdirnar styðja við búsetu og atvinnuþátttöku í dreifbýli og kolefnissporið er mjög lítið þar sem aðallega á að vinna jurtir sem eru ræktaðar í Huldulandi. Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir uppbyggingu tengda landbúnaði svo sem varðandi vinnslu. Framleiðslueldhúsið fer ekki yfir 2000 m2 viðmið og er fyrsta bygging fyrir aðra starfsemi sem rís á jörðinni. Hvorki er gengið á fornminjar né mikilvægt lífríki með byggingunni.
Meðfylgjandi er:
- Jákvæð umsögn minjavarðar
- Hnitsettur uppdráttur af byggingarreit
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðna stækkun á byggingarreit fyrir um 40 m2 framleiðslueldhús í landi Huldulands.

9.Tjarnarnes L227338 - Umsókn um stofnun landspildu
Málsnúmer 2608155Vakta málsnúmer
Brynhildur Sigtryggsdóttir og Ómar Kjartansson, þinglýstir eigendur jarðarinnar Tjarnarness, landnúmer 227338, óska eftir heimild til að stofna 79.496,1 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Arnarnes", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78260320 útg. 14. ágúst 2026 og merkjalýsingu dags. 14. ágúst 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem annað land (80).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og staðhátta.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Tjarnarnesi landnr. 227338.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4.
Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu, landnotkun og styðja við búsetu í dreifbýli.
Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Tjarnarnes, L227338, er ekki skráð lögbýli í skv. Lögbýlaskrá 2025.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004143.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

10.Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Málsnúmer 2608156Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Rósu Líf Darradóttur formanns Samtaka um dýravelferð dags. 6. ágúst 2026 þar sem Skagafjörður er hvattur til að skoða þá leið sem Norðurþing hefur farið varðandi stefnu um loðdýrarækt í aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd þakkar Samtökunum um dýravelferð fyrir erindið. Nefndin telur ekki tilefni til að hefja breytingu á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á grundvelli þess.
Nefndin telur að stefnumörkun í aðalskipulagi og ákvarðanir um landnotkun eigi að byggjast á málefnalegum og skipulagslegum forsendum, svo sem áhrifum starfsemi á landnotkun, umhverfi, heilbrigði, öryggi og nærliggjandi byggð. Nefndin telur ekki rétt að beita skipulagsvaldi sveitarfélagsins með það að markmiði eitt og sér að útiloka tiltekna atvinnustarfsemi sem heimil er samkvæmt landslögum, m.a. lögum um velferð dýra nr. 55/2013 og reglugerð um velferð minka nr. 1277/2014.
Við meðferð skipulagsmála er jafnframt mikilvægt að gæta þeirra réttinda sem varin eru í stjórnarskrá lýðveldis Íslands nr. 33/1944, þar á meðal atvinnufrelsis 75. gr., auk jafnræðis og meðalhófs.
Með vísan til framangreinds telur skipulagsnefnd erindið ekki gefa tilefni til breytingar á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.

11.Tillaga að umferðarúrbótum á Sauðárkróki
Málsnúmer 2608160Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að umferðarúrbótum á Sauðárkróki frá Jódísi Helgu Káradóttur fulltrúa Miðflokksins í skipulagsnefnd.
Þar sem eftirfarandi kemur fram:
Lagt er til að skipulagsnefnd feli skipulags- og framkvæmdarsviði að hefja greiningu og undirbúning að framtíðarúrbótum á tveimur lykilgatnamótum á Sauðárkróki:
- gatnamótum Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar; og
- gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
Markmið vinnunnar verði fyrst og fremst að stuðla að auknu umferðaröryggi en jafnframt að tryggja að þróun gatnakerfis Sauðárkróks taki mið af fyrirsjáanlegri uppbyggingu, auknum umferðarþunga og framtíðarstækkun bæjarins.
Við vinnuna verði byggt á fyrirliggjandi umferðarráðgjöf EFLU frá janúar 2025 vegna gatnamóta Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar og sú vinna þróuð áfram. Jafnframt verði gerð sambærileg frumgreining á gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
Í greiningunni verði meðal annars horft til núverandi umferðarmagns og umferðaröryggis, slysagagna, sjónlengda, umferðar gangandi og hjólandi vegfarenda, umferðar stórra ökutækja og áhrifa fyrirhugaðrar uppbyggingar á umferð um svæðið.
Jafnframt verði lagt mat á mögulegar framtíðarútfærslur gatnamótanna, svo sem hringtorg eða aðrar umferðaröryggisaðgerðir, eftir því sem faglegt mat gefur tilefni til.
Að lokinni greiningu verði niðurstöður lagðar fyrir skipulagsnefnd ásamt mati á mögulegum útfærslum, forgangsröðun, áætluðum kostnaði og tillögum að næstu skrefum.

12.Langaborg (L225909) - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag
Málsnúmer 2511043Vakta málsnúmer
Þann 22.04.2026 samþykkti sveitarstjórn Skagafjarðar tillögu að deiliskipulagi fyrir Lönguborg, landnr. 225909, í Hegranesi, Skagafirði. Málsnúmer í skipulagsgátt er 1624/2025. Deiliskipulagið gerir grein fyrir þremur byggingarreitum á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Heildar byggingarmagn á landeigninni verður skv. skipulaginu 364 m². Á Lönguborg er eitt íbúðarhús með bílskúr, byggt árið 2018, og eitt gestahús, byggt árið 2024, og á byggingarreitur nr. BR-1 við um þessar byggingar. Byggingarreitur nr. BR-2 er fyrir tvö gestahús á einni hæð. Hámarks byggingarmagn innan BR-2 er 70 m² og hámarks stærð botnflata bygginga er 40 m². Innan byggingarreits nr. BR-3 er gert ráð fyrir saunu- eða gufubaðsbyggingu, allt að 14 m² að stærð. Vestan við skipulagssvæðið liggur Hegranesvegur (764) sem er tengivegur af tegundinni C7 skv. vegaskrá 2025. Skv. d-lið, 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki staðsetja íbúðir eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m, utan þéttbýlis. 100 m lína frá þjóðvegi er sýnd á skipulagsuppdrætti og ganga byggingarreitir nær þjóðvegi en 100 m. Skv. 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur ráðherra, að fenginni umsögn HMS og hlutaðeigandi sveitarstjórnar veitt undanþágu frá einstökum greinum skipulagsreglugerðar. Minnstu fjarlægðir byggingarreita frá þjóðvegi, í beinni loftlínu, eru eftirfarandi:
BR-1: 83,9 m
BR-2: 90,4 m
BR-3: 94,5 m
Minnsta fjarlægð núverandi íbúðarhúss frá þjóðvegi er 85,4 m.
Skv. 2.5 kafla greinargerðar, og eins og fram kemur í afgreiðslubréfi HMS, skal sækja um undanþágu til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá fjarlægðarreglu skipulagsreglugerðar. Skv. GPS-mælingum stendur íbúðarhúsið rúmlega 10 m hærra en þjóðvegurinn vestan við það og það sama á við um nýja byggingarreiti sem fjallað er um í skipulaginu. Því má ætla að húsum, sem munu rísa innan þessara byggingarreita, stafi ekki hætta af umferð um Hegranesveg þar sem vegurinn liggur mun neðar í landinu. Eins og sést á meðfylgjandi yfirlitsuppdrætti og skipulagsuppdrætti er stærstur hluti landeignarinnar innan 100 m frá vegi og á austur mörkum lóðar er skurður. Því er verulega takmarkað landrými utan við 100 m frá vegi.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir sem sýna hæðarmun á vegstæði og fyrirhuguðu byggingarsvæði.
Því er sótt um undanþágu með þeim rökum að fyrirhugaðir byggingarreitir liggja það hátt í landinu, miðað við hæð vegarins, að ekki stafi nokkur hætta af umferð um Hegranesveg. Jafnframt eru aðstæður þannig að byggingarreitir komast ekki fjær vegi vegna landamerkja og skurðar sem liggur meðfram landamerkjum að austanverðu. Þá eru byggingarreitir hafðir eins nálægt núverandi húsi og land og ákvæði reglugerða leyfa til að lágmarka frekara jarðrask. Að lokum er bent á að nýjir byggingarreitir eru fjær þjóðvegi en núverandi íbúðarhús en byggingarreitur þess var minnkaður í deiliskipulagi og færður fjær þjóðvegi.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 100 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Hegranesvegi nr. (764).

Fundi slitið - kl. 16:15.
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2, í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 03.06.2026- 16.07.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 704/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/704 . Sex umsagnir bárust sem gefa tilefni til minniháttar breytinga. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari gögn liggja fyrir."
Fyrirliggur frekari útskýring á umsögn Vegagerðarinnar, ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð dags. 18.08.2026 unnin af Kollgátu ehf. arkitektastofu.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.
Þá samþykkir skipulagsnefnd jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.