Lagt fram erindi frá Rósu Líf Darradóttur formanns Samtaka um dýravelferð dags. 6. ágúst 2026 þar sem Skagafjörður er hvattur til að skoða þá leið sem Norðurþing hefur farið varðandi stefnu um loðdýrarækt í aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd þakkar Samtökunum um dýravelferð fyrir erindið. Nefndin telur ekki tilefni til að hefja breytingu á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á grundvelli þess.
Nefndin telur að stefnumörkun í aðalskipulagi og ákvarðanir um landnotkun eigi að byggjast á málefnalegum og skipulagslegum forsendum, svo sem áhrifum starfsemi á landnotkun, umhverfi, heilbrigði, öryggi og nærliggjandi byggð. Nefndin telur ekki rétt að beita skipulagsvaldi sveitarfélagsins með það að markmiði eitt og sér að útiloka tiltekna atvinnustarfsemi sem heimil er samkvæmt landslögum, m.a. lögum um velferð dýra nr. 55/2013 og reglugerð um velferð minka nr. 1277/2014.
Við meðferð skipulagsmála er jafnframt mikilvægt að gæta þeirra réttinda sem varin eru í stjórnarskrá lýðveldis Íslands nr. 33/1944, þar á meðal atvinnufrelsis 75. gr., auk jafnræðis og meðalhófs.
Með vísan til framangreinds telur skipulagsnefnd erindið ekki gefa tilefni til breytingar á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.