Fara í efni

Syðri-Hofdalir L146421) í Hofstaðaplássi - Deiliskipulag

Málsnúmer 2608158

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 20.08.2026

Björn Magnús Árnason á Stoð ehf. verkfræðistofu f.h. Atla Más Traustasonar, Ingibjargar Klöru Helgadóttur, Ingibjargar Aadnegard og Trausta Kristjánssonar, skráðra eigenda Hofdalabúsins ehf., þinglýsts eiganda Syðri-Hofdala, landnr. 146421, óska eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag fyrir hluta jarðarinnar á kostnað landeiganda, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er skipulagslýsing, útg. 1.0, dags. 05.08.26, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu skipulagsverkefni, helstu forsendum og viðfangsefnum. Í meðfylgjandi skipulagslýsingu er sýnd afmörkun skipulagssvæðis. Skipulagslýsing er unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því, að fengnu samþykki skipulagsnefndar og sveitarstjórnar, að meðfylgjandi skipulagslýsing fái kynningu skv. 5.2.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Skipulagssvæðið er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og verður tillaga að deiliskipulagi unnin á grundvelli þess.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að heimila umsækjendum að vinna deiliskipulagstillögu á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja skipulagslýsinguna fyrir Syðri-Hofdali, í Viðvíkursveit, Skagafirði og senda hana til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til umsagnar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að lýsingin verði kynnt almenningi skv. sömu grein.