Fara í efni

Skipulagsnefnd

107. fundur 05. október 2026 kl. 13:00 - 15:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Einar Eðvald Einarsson
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Deiliskipulag - Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra - Verknámshús - Skagfirðingabraut 26

Málsnúmer 2401263Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skagfirðingabraut 26, uppdráttur ásamt greinargerð nr. DS-01, verknúmer 56293200, dags. 21.09.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

Skipulagsuppdrátturinn sýnir fyrirhugaða uppbyggingu innan skipulagssvæðisins, aðkomu inn á lóðina, byggingarreiti, bílastæði og helstu skilmála.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

2.Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði - Deiliskipulag

Málsnúmer 2511191Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Laufblaðið íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði, uppdrættir DS01 og DS02 ásamt greinargerð dags. 01.10.2026, verknúmer 56291510, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, Árna Ragnarssyni og Atla Gunnari Arnórssyni.

Uppdrátturinn sýnir afmörkun lóða, byggingarreiti, götulínur, gönguleiðir og helstu byggingarskilmála. Skýringaruppdráttur nr. DS-02 sýnir lóðamörk og núverandi byggingar, skilmálatöflu og hugmyndafræðin fyrir opna svæðið sem unnin er af Hildi Hartmannsdóttur.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Laufblaðið - Íbúðarbyggð Sauðárkróki, Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

3.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer

Lögð fram vinnslutillaga deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir Furulund í Varmahlíð, uppdrættir DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.

Helsta viðfangsefni við breytingu á aðalskipulagi er að marka stefnu um landnotkun þar sem fyrir liggur að landnotkun síðustu ára mun breytast, þar sem leikskólinn hefur verið fluttur frá götunni Furulundi. Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar.
Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

4.Syðri-Hofdalir L146421) í Hofstaðaplássi - Deiliskipulag

Málsnúmer 2608158Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir Syðri-Hofdali, í Hofsstaðaplássi, mál nr. 1014/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1014 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 02.09.2026- 24.09.2026 og bárust 8 umsagnir.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

5.Tunguháls II L146242 í Tungusveit - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2609250Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Líneyjar Maríu Hjálmarsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:

“Líney María Hjálmarsdóttir þinglýstur eigandi jarðarinnar Tunguháls II, landnúmer 146242, óskar eftir heimild til að stofna um 5.000 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74800010 útg. 15. sept. 2026.
Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf, af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar fjósbyggingar. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn verður um 2.500 m² og hámarks byggingarhæð verður um 7 m frá gólfi í mæni. Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins. Jafnframt segir í sama kafla:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um nýbyggingu á fjósi sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform stuðla að aukinni velferð dýra á búinu með auknu rými og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð nýbygging samræmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Sótt er um að byggingarreiturinn verði staðsettur í rúmlega 15 metra fjarlægð frá miðlínu héraðsvegarins (nr. 757), sem samræmist ákvæði 32. gr. 1. mgr. vegalaga nr. 80/2007 um 15 metra veghelgunarsvæði. Umsækjandi óskar eftir undanþágu til að víkja frá 50 metra fjarlægðarmörkum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 (gr. 5.3.2.5, c-lið) og Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 (kafla 4.1).
Hér er sótt um undanþágu vegna sérstakra landfræðilegra og ræktunarlega aðstæðna. Á landeigninni er mikill hæðarmunur og brattur halli fjær veginum, en heppilegt sléttlendi er nær veginum á bilinu 15-50 metrar. Með því að staðsetja fjósbygginguna á sléttlendinu er komið í veg fyrir umfangsmiklar skeringar, jarðvegsflutninga og óþarft jarðrask í brattara landslaginu, sem ellegar myndi skilja eftir sig varanleg sár í ásýnd svæðisins. Þá kemur staðsetningin nær veginum í veg fyrir að byggt sé á verðmætara tún- og ræktunarlandi jarðarinnar fjær veginum, sem samræmist stefnu aðalskipulagsins og jarðalaga um að vernda verðmætt ræktarland og halda ræktarsvæðum órofnum."
Óskað hefur verið eftir umsögn Vegagerðarinnar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Villinganesvegi nr. 757.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit fyrir fjósbyggingu á Tunguhálsi II að fenginni jákvæðri umsögn ráðuneytisins vegna undanþágubeiðni vegna fjarlægðarmarka.

6.Vallholt L232700, í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn nafnabreytingu, stofnun landspildu og stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2609252Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Rögnu Hrundar Hjartardóttur og Stefaníu Sigfúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Ragna Hrund Hjartardóttir og Stefanía Sigfúsdóttir þinglýstir eigendur jarðarinnar Vallholts, landnr. 232700, óska eftir að breyta staðfangi jarðarinnar úr "Vallholt" í "Vallholt 2".
Einnig er óskað eftir að stofna 37.722 m² (3,77 ha) spildu úr landi jarðarinnar, sem "Vallholt", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72440901 dags. 23. sept. 2026 og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og örnefna á svæðinu.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram Vallholti 2, L232700, áður Vallholt.
Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-1 og L-2. Afmörkun lóðarinnar samræmist afmörkun á byggingarreit sem var samþykktur í sveitarstjórn þann 09.02.2022. Ekki er farið út fyrir afmörkun byggingarreits, svo ekki sé tekið stærra land úr landbúnaðarnotkun en þörf krefur, sbr. ákvæði 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004, framyfir það sem samþykkt hefur verið undir byggingarreit. Um er að ræða landskipti um núverandi íbúðarhús og því koma aðrir valkostir ekki til greina. Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði og ekki er girt fyrir möguleg búrekstrarnot í framtíðinni.
Landskiptin samræmast markmiðum Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 fyrir landbúnað um fjölgun íbúa í dreifbýli. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er heimilt að stofna lóðir undir einstakar byggingar.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Innan útskiptrar spildu er matshluti 01 sem er 250,30 m² einbýlishús byggt árið 2024. Mannvirki þetta skal fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram landnúmeri 232700.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004268.
Þá er óskað eftir stofnun 2.467,7 m² byggingarreits á landi Vallholts 2, landnr. 232700, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S02 í verki nr. 72440901, dags. 23. sept. 2026. Skv. Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er, á landbúnaðarsvæðum, fyrst og fremst gert ráð fyrir byggingum sem tengjast og styðja við landbúnað. Mannvirki sem reist verður á umsóttum byggingarreit verður í samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum. Hámarks byggingarmagn á umsóttum byggingarreit verður 700 m². Tilgangur byggingar er að lágmarka geymslu búnaðar utandyra og draga þannig úr neikvæðum ásýndaráhrifum af nærliggjandi vegi. Byggingarreitur sem sótt er um er á landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem hentar síður til jarðræktar. Uppbygging heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum. Mannvirki sem sótt er um byggingarreit fyrir hefur beina tengingu við landbúnaðarstarfsemi á jörðinni og skerðir ekki né rífur samfellu landbúnaðarlands í flokki I. Yfirferðarréttur er um heimreið sem liggur norðan byggingarreits og er þess gætt að reiturinn skerði ekki þann rétt eða annað aðgengi. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Það á við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingarreitur sem sótt er um er ekki innan skilgreinds verndarsvæðis og er í samræmi við fjarlægðarreglur frá vegum og vötnum."
Fyrirliggur umsögn landeiganda Lynghólma, L189120, án athugasemda, vegna heimreiðar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

7.Lóð 20 á Nöfum L143982 á Sauðárkróki - Umsókn um stofnun lóðar og byggingarreits

Málsnúmer 2609274Vakta málsnúmer

Baldur Björnsson, f.h. Skagafjarðar, þinglýsts eiganda Lóðar 20 á Nöfum, landnr. 143982, óskar eftir heimild til að stofna 36 m² lóð úr landinu sem “Nafir dælustöð", ásamt stofnun 16 m² byggingarreits innan þeirrar lóðar, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 31250001, dags. 17. september 2026, og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni.
Landheiti hinnar útskiptu lóðar vísar til fyrirhugaðrar notkunar hennar. Skagafjörður er þinglýstur eigandi allra aðliggjandi landeigna, þ.e. Lóðar 21 á Nöfum (landnr. 143980), Lóðar 19 á Nöfum (landnr. 143979) og Lóðar 12 á Nöfum (landnr. 143984). Fyrirhugaður byggingarreitur er að öllu leyti innan Lóðar 20 á Nöfum. Jafnframt hefur Ingólfi Jóni Sveinssyni leigutaka lóðar 20 á Nöfum, skv. þinglýstu skjali nr. 374/2025 sem er lóðarleigusamningur dags. 14. júní 2025, verið kynnt efni erindisins og meðfylgjandi afstöðuuppdrátt, og áritar hann erindið til staðfestingar um að hann hafi kynnt sér gögnin og geri ekki athugasemdir.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

8.Arnarhóll L236455 í Hegranesi - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2610028Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Birgis Þórðarsonar þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Þann 24. ágúst 2023 samþykkti skipulagsnefnd Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun landspildu og byggingarreits á landi jarðarinnar, sem Arnarhóll, síðar samþykkt hjá sveitarstjórn Skagafjarðar þann 13. sept. 2023.

Birgir Þórðarson, þinglýstur eigandi lóðarinnar Arnarhóls landnr. 236455, óskar eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 12.129,3 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75640104 útg. 30. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar frístundahúss og tilheyrandi fylgihúsa, allt að 3 húsum innan reitsins, endanleg hönnun mannvirkja liggur ekki fyrir.
Í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins um heildarfjölda og stærðarmörk mannvirkja segir:
Uppbygging nýrra stakra bygginga... fari ekki yfir 2.000 m² og heildarfjöldi þeirra ekki fleiri en 3.
Auk þess er í gr. 5.3.2.12 í Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 kveðið á um heimild til byggingar fylgihúsa með eftirfarandi hætti:
Frístundahús ásamt tilheyrandi mannvirkjum, svo sem geymslu, gestahúsi og bátaskýli skulu að jafnaði vera á sér lóð...
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Arnarhóls landnr. 236455, sem er skráð sumarhúsaland á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Áform um uppbyggingu eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum (kafli 3.7) og ákvæði um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 í greinargerð aðalskipulagsins segir meðal annars:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi fyrir stökum framkvæmdum í dreifbýli án þess að gera þurfi kröfu um skipulagsgerð umfram það sem þörf er fyrir... Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur... Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um stækkun byggingarreits fyrir frístundahús og fylgihús. Lögð verður áhersla á að áformuð mannvirki samræmist yfirbragði og ásýnd umhverfisins. Núverandi innviðir nýtast áfram og er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á umhverfi, mengun eða aðgengi á svæðinu.
Eigandi Arnarhóls landnr. 236455 er einnig eigandi aðliggjandi jarðar, Ríp 2 landnr. 146396.“
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits.

9.Ríp II lóð 1 L224730 - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2610031Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Sigurðar Heiðars Birgissonar og Sigurlínu Erlu Magnúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Þann 18. nóvember 2016 samþykkti skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar umsókn landeiganda Ríp 2, landnr. 146396, um stofnun byggingarreits á landi jarðarinnar, sem síðar var stofnuð íbúðarhúsalóð utan um, sem Ríp II lóð 1, skv. þinglýstu skjali nr. 1120/2016.
Sigurður Heiðar Birgisson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, þinglýstir eigendur lóðarinnar Ríp II lóð 1 landnr. 224730, óska eftir heimild til að stækka áður samþykktan byggingarreit um 1094 m², skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75647001 útg. 24. sept. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur. Reiturinn stækkar um 15 m til norðurs, 11 m til vesturs, 3 m til austurs og 14 m til suðurs, frá núverandi reit.
Um er að ræða stækkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við núverandi íbúðarhús sem byggt var árið 2016. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarksbyggingarmagn viðbyggingar verður um 150 m² og verður byggingarhæð í samræmi við núverandi byggingu.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Ríp II lóð 1 landnr. 224730, sem er skráð íbúðarhúsalóð á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 greinargerðar, þar sem um er að ræða viðbyggingu við núverandi mannvirki. Núverandi innviðir nýtast áfram, ekki er verið að fjölga sjálfstæðum byggingum og framkvæmdin ekki líkleg til að hafa veruleg áhrif á mengun eða aðgengi. Jafnframt segir í sama kafla:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um viðbyggingu við íbúðarhús sem þjónar búsetu og starfsemi á staðnum. Lögð verður áhersla á að áformuð viðbygging samrýmist yfirbragði og ásýnd svæðisins. Áhrif á umhverfi eru óveruleg umfram áhrif núverandi byggingar. Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda Ríp 2, landnr. 146396, er erindið því einnig áritað af eigendum þeirrar eignar til staðfestingar um að þeim hafi verið kynnt meðfylgjandi gögn og geri ekki athugasemdir. “
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stækkun byggingarreits.

10.Brekkutún 6 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2609239Vakta málsnúmer

Gígja Jónsdóttir og Jón Olgeir Ingvason lóðarhafar Brekkutúns 6 á Sauðárkróki óska eftir heimild til að breikka innkeyslu á lóðinni. Sótt er um 3,2 m breikkun til suðurs, yfir lagnasvæði sveitarfélagsins, sæmbærileg breikkun og hefur verið leyft t.d. við Brekkutún 4. Mynd fylgir erindinu sem gerir grein fyrir umbeðinni framkvæmd.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyrslu lóðar Brekkutúns 6 á Sauðárkróki. Framkvæmdina skal vinna í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

Sigurður H. Ingvarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.

11.Hólavegur 12 - Beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings.

Málsnúmer 2609276Vakta málsnúmer

Rúnar Pálsson óskar eftir endurnýjun lóðaleigusamnings varðandi lóðina nr. 12 við Hólaveg á Sauðárkróki.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að láta fullvinna lóðarblaðið ásamt merkjalýsingu og ganga frá skráningu lóðarinnar jafnframt því að gera lóðarleigusamning við hlutaðeigandi.

12.Borgargerði 2 L145921 í Borgarsveit - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum

Málsnúmer 2610034Vakta málsnúmer

Kristín Efla Magnúsdóttir, f.h. Videosport ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Borgargerðis 2 (landnr. 145921), óskar eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 72954304, dags. 28. september 2026, unnum á Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur, og merkjalýsingu, unninni af Birni Magnúsi Árnasyni.
Landamerki Borgargerðis 2 og Borgar, byggja á þinglýstu skjali nr. 69/2024. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 4, landnr. 234946, eru skv. teikningu nr. S01 í verki nr. 72954303, dags. 9. sept. 2022. Landamerki þessi urðu til með staðfestingu sveitarstjórnar Skagafjarðar dags. 10. okt. 2022 á umsókn undirritaðs um landskipti úr landi Borgargerðis 2. Því er litið á þau sem staðfest merki. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1 land 2 er skv. teikningu nr. S01 í verki 72951, dags. 16. apríl 2010. Landamerki Borgargerðis 2 og Borgargerðis 1, og landamerki Borgargerðis 2 við Áshildarholtsvatn, að norðan, byggja á þinglýstu skjali nr. 23429, dags. 17. febrúar 1975.
Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda um ágreiningslaus landamerki.
Um er að ræða hnitsetningu á eldri þinglýstum eignamörkum landeignarinnar. Engar breytingar eru gerðar á þegar hnitsettum merkjum jarðarinnar gagnvart aðliggjandi landeignum. Engin mannvirki eru skráð á umræddri landeign.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004336.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.

13.Hjalli land L146300 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreits og nafnabreytingu landeignar

Málsnúmer 2609275Vakta málsnúmer

Giulia Weitz og Kristján Víðir Kristjánsson þinglýstir eigendur Hjalla land, landnúmer 146300, óska eftir heimild til að stofna 117 m² byggingarreit fyrir gestahús innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73800001 útg. 8. September 2026. Afstöðuppdrátturinn var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Einnig er meðfylgjandi uppdráttur nr. A 01, dags. 02. 03. 2026, unnin af Guðmundi Þór Guðmundssyni, sem sýnir byggingaráform, þ.e. grunnmynd, snið og útlit.
Samhliða er hér sótt um heimild til nafnabreytingar á landeigninni, úr Hjalli land yfir í Hjalli 2.
Innan landareignarinnar er matshluti 01 sem er einbýlishús, 140,2 m² að stærð, byggt árið 1991 og matshluti 02 sem er geymsla, 117,9 m² að stærð, byggt árið 2008.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt gestahús sem verður að hámarki 60 m² að stærð og að hámarki 4 m að hæð.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 (annað land eða lélegt ræktarland) skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 um stakar framkvæmdir segir: "Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur...". Samkvæmt skipulagsákvæðum fyrir landbúnaðarsvæði L-4 er “uppbygging og mannvirkjagerð heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum". Í almennum skipulagsákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum segir jafnframt að "skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af skipulagsákvæðum og umfangi framkvæmda." og "Framvkæmdir eða breytingar á landnotkun skulu metnar með tilliti til mögulegra áhrifa á verndargildi votlendis, gróðurlendis, fuglasvæða og líffræðilegs fjölbreytileika."
Skv. ákvæðum 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn eða aðili sem hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála ákveðið að veita megi byggingar- eða framkvæmdaleyfi án deiliskipulags ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Jafnframt er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkyningu ef sýnd er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Skv. 5.9.7. gr. þurfa hönnunargögn ekki að vera fullunnin á þessu stigi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.
Óskað hefur verið eftir umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir gestahús.

Fyrir liggja afrit af umsögnum eigenda Hjaltastaða land, L180161 og Hjalla land, L221439 þar sem fram kemur að eigendur nefndra fasteigna geri ekki athugasemdir við ætlaða byggingarframkvæmd.
Ekki liggur fyrir umsögn eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299 sem umlykur nefnda lóð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við sveitarstjórn að fyrirhuguð umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt þeim nágrönnum sem taldir geta átt hagsmuna að gæta.
Það er:
Eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299. Eiganda lóðarinnar Hjalla land, L221439. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaða land, L180161. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaðir 2, L225439.
Eigendum jarðarinnar Hjaltastaðir, L146301. Eiganda lóðarinnar Hornskarpur, L240079.

Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.

14.Tillaga að umferðarúrbótum á Sauðárkróki

Málsnúmer 2608160Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í frumhönnun og kostnaðarmat á hringtorgi við Skagfirðingabraut-Sæmundarhlíð-Borgargerði ásamt kostnaðarmati á áður frumhönnuðu hringtorgi við Skagfirðingabraut-Sæmundarhlíð-Hegrabraut.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

15.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Skipulags- og byggingamál

Málsnúmer 2608082Vakta málsnúmer

Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

16.Gjaldskrá skipulagsfulltrúa þjónustu- og framkvæmdagjöld 2027

Málsnúmer 2608197Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá fyrir þjónustu- og framkvæmdagjöld skipulagsfulltrúa 2027.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá.

17.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 94

Málsnúmer 2609016FVakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 94 þann 18.09.2026.

Fundi slitið - kl. 15:30.