Fara í efni

Hjalli land L146300 í Blönduhlíð - Umsókn um stofnun byggingarreits og nafnabreytingu landeignar

Málsnúmer 2609275

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 107. fundur - 05.10.2026

Giulia Weitz og Kristján Víðir Kristjánsson þinglýstir eigendur Hjalla land, landnúmer 146300, óska eftir heimild til að stofna 117 m² byggingarreit fyrir gestahús innan lóðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73800001 útg. 8. September 2026. Afstöðuppdrátturinn var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur. Einnig er meðfylgjandi uppdráttur nr. A 01, dags. 02. 03. 2026, unnin af Guðmundi Þór Guðmundssyni, sem sýnir byggingaráform, þ.e. grunnmynd, snið og útlit.
Samhliða er hér sótt um heimild til nafnabreytingar á landeigninni, úr Hjalli land yfir í Hjalli 2.
Innan landareignarinnar er matshluti 01 sem er einbýlishús, 140,2 m² að stærð, byggt árið 1991 og matshluti 02 sem er geymsla, 117,9 m² að stærð, byggt árið 2008.
Um er að ræða byggingarreit fyrir nýtt gestahús sem verður að hámarki 60 m² að stærð og að hámarki 4 m að hæð.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 (annað land eða lélegt ræktarland) skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Áformin eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 um stakar framkvæmdir segir: "Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur...". Samkvæmt skipulagsákvæðum fyrir landbúnaðarsvæði L-4 er “uppbygging og mannvirkjagerð heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum". Í almennum skipulagsákvæðum um landnotkun á landbúnaðarsvæðum segir jafnframt að "skipulagsnefnd metur hverju sinni málsmeðferð uppbyggingaráforma m.t.t. skipulagslaga, með hliðsjón af skipulagsákvæðum og umfangi framkvæmda." og "Framvkæmdir eða breytingar á landnotkun skulu metnar með tilliti til mögulegra áhrifa á verndargildi votlendis, gróðurlendis, fuglasvæða og líffræðilegs fjölbreytileika."
Skv. ákvæðum 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn eða aðili sem hefur heimild til fullnaðarafgreiðslu mála ákveðið að veita megi byggingar- eða framkvæmdaleyfi án deiliskipulags ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar og skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Jafnframt er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkyningu ef sýnd er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Skv. 5.9.7. gr. þurfa hönnunargögn ekki að vera fullunnin á þessu stigi.
Lögð verður áhersla á að áformuð uppbygging verði í samræmi við yfirbragð og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif. Áformin skerða ekki aðgengi að öðrum byggingum en kunna að hafa ásýndaráhrif af Siglufjarðarvegi (76).
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.
Óskað hefur verið eftir umsögn eigenda nærliggjandi landeigna vegna byggingareits fyrir gestahús.

Fyrir liggja afrit af umsögnum eigenda Hjaltastaða land, L180161 og Hjalla land, L221439 þar sem fram kemur að eigendur nefndra fasteigna geri ekki athugasemdir við ætlaða byggingarframkvæmd.
Ekki liggur fyrir umsögn eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299 sem umlykur nefnda lóð.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við sveitarstjórn að fyrirhuguð umbeðin framkvæmd verði grenndarkynnt þeim nágrönnum sem taldir geta átt hagsmuna að gæta.
Það er:
Eiganda jarðarinnar Hjalla, L146299. Eiganda lóðarinnar Hjalla land, L221439. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaða land, L180161. Eigendum lóðarinnar Hjaltastaðir 2, L225439.
Eigendum jarðarinnar Hjaltastaðir, L146301. Eiganda lóðarinnar Hornskarpur, L240079.

Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.