Fara í efni

Vallholt L232700, í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn nafnabreytingu, stofnun landspildu og stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2609252

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 107. fundur - 05.10.2026

Lögð fram umsókn Rögnu Hrundar Hjartardóttur og Stefaníu Sigfúsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Ragna Hrund Hjartardóttir og Stefanía Sigfúsdóttir þinglýstir eigendur jarðarinnar Vallholts, landnr. 232700, óska eftir að breyta staðfangi jarðarinnar úr "Vallholt" í "Vallholt 2".
Einnig er óskað eftir að stofna 37.722 m² (3,77 ha) spildu úr landi jarðarinnar, sem "Vallholt", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 72440901 dags. 23. sept. 2026 og merkjalýsingu dags. 23. sept. 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og örnefna á svæðinu.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram Vallholti 2, L232700, áður Vallholt.
Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-1 og L-2. Afmörkun lóðarinnar samræmist afmörkun á byggingarreit sem var samþykktur í sveitarstjórn þann 09.02.2022. Ekki er farið út fyrir afmörkun byggingarreits, svo ekki sé tekið stærra land úr landbúnaðarnotkun en þörf krefur, sbr. ákvæði 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004, framyfir það sem samþykkt hefur verið undir byggingarreit. Um er að ræða landskipti um núverandi íbúðarhús og því koma aðrir valkostir ekki til greina. Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði og ekki er girt fyrir möguleg búrekstrarnot í framtíðinni.
Landskiptin samræmast markmiðum Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 fyrir landbúnað um fjölgun íbúa í dreifbýli. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum er heimilt að stofna lóðir undir einstakar byggingar.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Innan útskiptrar spildu er matshluti 01 sem er 250,30 m² einbýlishús byggt árið 2024. Mannvirki þetta skal fylgja landskiptum.
Lögbýlisréttur fylgir áfram landnúmeri 232700.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004268.
Þá er óskað eftir stofnun 2.467,7 m² byggingarreits á landi Vallholts 2, landnr. 232700, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S02 í verki nr. 72440901, dags. 23. sept. 2026. Skv. Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er, á landbúnaðarsvæðum, fyrst og fremst gert ráð fyrir byggingum sem tengjast og styðja við landbúnað. Mannvirki sem reist verður á umsóttum byggingarreit verður í samræmi við ákvæði aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum. Hámarks byggingarmagn á umsóttum byggingarreit verður 700 m². Tilgangur byggingar er að lágmarka geymslu búnaðar utandyra og draga þannig úr neikvæðum ásýndaráhrifum af nærliggjandi vegi. Byggingarreitur sem sótt er um er á landbúnaðarsvæði nr. L-4 í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 sem hentar síður til jarðræktar. Uppbygging heimil að uppfylltum skipulagsákvæðum. Mannvirki sem sótt er um byggingarreit fyrir hefur beina tengingu við landbúnaðarstarfsemi á jörðinni og skerðir ekki né rífur samfellu landbúnaðarlands í flokki I. Yfirferðarréttur er um heimreið sem liggur norðan byggingarreits og er þess gætt að reiturinn skerði ekki þann rétt eða annað aðgengi. Skv. almennum skipulagsákvæðum aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefa tilefni til. Það á við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingarreitur sem sótt er um er ekki innan skilgreinds verndarsvæðis og er í samræmi við fjarlægðarreglur frá vegum og vötnum."
Fyrirliggur umsögn landeiganda Lynghólma, L189120, án athugasemda, vegna heimreiðar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og stofnun byggingarreits.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.