Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Skipulags- og byggingamál

Málsnúmer 2608082

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 106. fundur - 17.09.2026

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 09, skipulagsmál, ásamt forsendum lagður fram.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða rammaáætlun fyrir 2027 og felur forstöðumönnum að hefja vinnu við gerð vinnubóka.

Skipulagsnefnd - 107. fundur - 05.10.2026

Lögð fram, til fyrri umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.
Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu.

Skipulagsnefnd - 109. fundur - 29.10.2026

Lögð fram, til seinni umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.
Anna Karítas Ingvarsdóttir sérfræðingur í fjármálum hjá sveitarfélaginu Skagafirði sat undir þessum fundarlið.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

Gestir

  • Anna Karítas Ingvarsdóttir