Fara í efni

Skipulagsnefnd

109. fundur 29. október 2026 kl. 10:00 - 12:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varam. áheyrnarftr.
  • Gunnar Smári Reynaldsson varam.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Umsagnarbeiðni vegna máls nr 1293 2024 í Skipulagsgátt - Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 (Nýtt aðalskipulag)

Málsnúmer 2410281Vakta málsnúmer

Húnabyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar vegna auglýstar tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037, mál nr. 1293/2024 í Skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1293 .
Kynningartími var til 23.10.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037.
Nefndin áréttar að sveitarfélagamörk milli Húnabyggðar og Skagafjarðar þarfnist frekari skoðunar.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 09_Skipulags- og byggingamál

Málsnúmer 2608082Vakta málsnúmer

Lögð fram, til seinni umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.
Anna Karítas Ingvarsdóttir sérfræðingur í fjármálum hjá sveitarfélaginu Skagafirði sat undir þessum fundarlið.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

Gestir

  • Anna Karítas Ingvarsdóttir

3.Gamli bærinn Sauðárkróki - Deiliskipulag

Málsnúmer 2607033Vakta málsnúmer

Páll Jakob Líndal skipulagsráðgjafi sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir niðurstöður vinnustofunnar, drög að skipulagslýsingu og tillögu að charrette vinnustofu til að þróa frumtillögu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

Gestir

  • Páll Jakob Líndal

4.Varnargarður í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð - Framkvæmdaleyfisumsókn

Málsnúmer 2610217Vakta málsnúmer

Ingvar Páll Ingvarsson fyrir hönd Vegagerðarinnar, óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðs varnargarðs í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð Skagafirði.
Garðinum er ætlað að varna landbroti og tjóni á ræktarlandi Miðhúsa og Þorleifsstaða ásamt því að verja hringveg fyrir flóðvatni frá Héraðsvötnum. Land það sem um ræðir er skv. aðalskipulagi Skagafjarðar í flokki L1. Flóð undanfarinna ára hafa valdið tjónum á túnum og flætt hefur upp á hringveginn, er vísað til flóða í m.a. apríl og maí 2025, desember 2006 og mars 2000.
Garðurinn yrði er 509 m langur og áætlað er að fari í hann um 5.700 m³ af efni sem tekið verður að mestu úr Djúpadalsárnámu. Garðurinn verður byggður á grónu landi frá stöð 0 til 260, frá stöð 260 til 509 er um að ræða styrkingu á eldri garði, því er ekki er reiknað með að framkvæmdin hafi í för með sér breytingu á streymi Héraðsvatna, né hafi önnur áhrif á vatnsbúskap svæðisins. Framkvæmdin mun tengja saman eldri garða og mynda heildstæðari flóðavarnir.
Óskað hefur verið eftir umsögn Fiskistofu og fyrirliggur jákvæð umsögn veiðifélags Héraðsvatanna.
Leyfi landeiganda Miðhúsa og Þorleifsstaða liggur fyrir, en garðurinn er allur innan eignarlands þessara jarða.
Meðfylgjandi umsókninni er afstöðumynd frá Vegagerðinni, uppdráttur D-01, drónamyndir sem sýna flóð á svæðinu, ásamt leyfi landeigenda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu.

5.Breiðargerði (146154) - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2610175Vakta málsnúmer

Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir fyrir hönd Rarik, óskar eftir stofnun lóðar úr landi Breiðargerðis L146154 í Skagafirði.
Ný lóð er 20 m2 og er undir spennistöð sem yrði hluti af dreifikerfi Rarik.
Fyrir liggur umsókn landeiganda, Elínborgar Erlu Ásgeirsdóttur um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá skv. 14. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna úr landi Breiðargerðis L146154 í Skagafirði.
Framlögð merkjalýsing og uppdráttur unnin af Eflu verkfræðistofu.
Landheiti hinnar nýju lóðar vísar í nafnið á bænum, Breiðargerði spennistöð.
Stofnað hefur verið málið M004056 - Breiðargerði spennistöð í landeignaskrá HMS.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðin landskipti.

6.Kelduvík L145900 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum

Málsnúmer 2610220Vakta málsnúmer

Ragnheiður G Ástvaldsdóttir, Tómas Ástvaldsson, Ingimar Rúnar Ástvaldsson, Steinn Ástvaldsson, Brynleifur B. Björnsson, Birna Karen Björnsdóttir, Sandra Rós Björnsdóttir, þinglýstir eigendur Kelduvíkur, landnúmer 145900, óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71980001, dags. 2. júlí. 2026, unnum á Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur, og merkjalýsingu, dags. 2. júlí, 2026, unninni af Birni Magnúsi Árnasyni.
Hnit á ytri merkjum Kelduvíkur byggja á landamerkjalýsingu nr. 351 sem er lýsing á merkjum Kelduvíkur, þinglesin á manntalsþingi að Skefilsstöðum 2. júní 1916 og landamerkjalýsingu nr. 264 sem er lýsing á merkjum Þangskála og Kelduvík, þinglesin á manntalsþingi á Skefilsstöðum 28. maí 1890.
Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda og aðliggjandi landeigenda, um ágreiningslaus landamerki.
Eftirtalin mannvirki eru skráð á jörðinni:
Matshluti nr. 04, sem er sumarbústaður 26 m2 að stærð, byggt árið 1961.
Matshluti nr. 05, sem er sumarbústaður 42,2 m2 að stærð, byggt árið 1964.
Matshluti nr. 10, sem er véla/verkfærageymsla 96 m2 að stærð, byggt árið 1967.
Matshluti nr. 11, sem er veiðihús 18,6 m2 að stærð, byggt árið 2004.
Matshluti nr. 12, sem er hesthús 23,1 m2 að stærð, byggt árið 1960.
Málsnúmer í landeignaskrá HMS M004335.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.

7.Lóð 63 á Gránumóum - Beiðni um lóðarstækkun

Málsnúmer 2610186Vakta málsnúmer

Þórólfur Gíslason fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sækir um stækkun á lóðinni Gránumóum 63 samkvæmd meðfylgjandi afstöðumynd. Um er að ræða stækkun bæði að vestan og sunnan við núverandi lóð, stækkunin yrði um 1.828 m2.
Ástæða umbeðinnar stækkunar er fyrirhuguð lagfæring á öllu svæðinu í kring um Fóðurstöðina og milli Fóðurstöðvarinnar og aðstöðuhússins sem er á aðliggjandi lóð, Gránumóum 64.
Stærsta breytingin yrði fyrirhuguð malbikun á svæðinu og annar nauðsynlegur frágangur sem áætlað er að fara í vorið 2027.
Núverandi lóðarmörk vestan við stöðina liggja um vinnuplan sem er að hluta í landi sveitarfélagsins Skagafjarðar. Því til viðbótar er núverandi vinnusvæði vestan og sunnan við stöðina of þröngt þar sem erfitt er að koma stórum bílum að svæðinu til að lesta/aflesta.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna lóðarstækkun Gránumóa 63.

Sigurður Bjarni Rafnsson fulltrúi Framsóknar víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.

Fundi slitið - kl. 12:15.