Fara í efni

Varnargarður í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð - Framkvæmdaleyfisumsókn

Málsnúmer 2610217

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 109. fundur - 29.10.2026

Ingvar Páll Ingvarsson fyrir hönd Vegagerðarinnar, óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðs varnargarðs í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð Skagafirði.
Garðinum er ætlað að varna landbroti og tjóni á ræktarlandi Miðhúsa og Þorleifsstaða ásamt því að verja hringveg fyrir flóðvatni frá Héraðsvötnum. Land það sem um ræðir er skv. aðalskipulagi Skagafjarðar í flokki L1. Flóð undanfarinna ára hafa valdið tjónum á túnum og flætt hefur upp á hringveginn, er vísað til flóða í m.a. apríl og maí 2025, desember 2006 og mars 2000.
Garðurinn yrði er 509 m langur og áætlað er að fari í hann um 5.700 m³ af efni sem tekið verður að mestu úr Djúpadalsárnámu. Garðurinn verður byggður á grónu landi frá stöð 0 til 260, frá stöð 260 til 509 er um að ræða styrkingu á eldri garði, því er ekki er reiknað með að framkvæmdin hafi í för með sér breytingu á streymi Héraðsvatna, né hafi önnur áhrif á vatnsbúskap svæðisins. Framkvæmdin mun tengja saman eldri garða og mynda heildstæðari flóðavarnir.
Óskað hefur verið eftir umsögn Fiskistofu og fyrirliggur jákvæð umsögn veiðifélags Héraðsvatanna.
Leyfi landeiganda Miðhúsa og Þorleifsstaða liggur fyrir, en garðurinn er allur innan eignarlands þessara jarða.
Meðfylgjandi umsókninni er afstöðumynd frá Vegagerðinni, uppdráttur D-01, drónamyndir sem sýna flóð á svæðinu, ásamt leyfi landeigenda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu.