Lögð fram tillaga að umferðarúrbótum á Sauðárkróki frá Jódísi Helgu Káradóttur fulltrúa Miðflokksins í skipulagsnefnd.
Þar sem eftirfarandi kemur fram:
Lagt er til að skipulagsnefnd feli skipulags- og framkvæmdarsviði að hefja greiningu og undirbúning að framtíðarúrbótum á tveimur lykilgatnamótum á Sauðárkróki:
- gatnamótum Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar; og
- gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
Markmið vinnunnar verði fyrst og fremst að stuðla að auknu umferðaröryggi en jafnframt að tryggja að þróun gatnakerfis Sauðárkróks taki mið af fyrirsjáanlegri uppbyggingu, auknum umferðarþunga og framtíðarstækkun bæjarins.
Við vinnuna verði byggt á fyrirliggjandi umferðarráðgjöf EFLU frá janúar 2025 vegna gatnamóta Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar og sú vinna þróuð áfram. Jafnframt verði gerð sambærileg frumgreining á gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
Í greiningunni verði meðal annars horft til núverandi umferðarmagns og umferðaröryggis, slysagagna, sjónlengda, umferðar gangandi og hjólandi vegfarenda, umferðar stórra ökutækja og áhrifa fyrirhugaðrar uppbyggingar á umferð um svæðið.
Jafnframt verði lagt mat á mögulegar framtíðarútfærslur gatnamótanna, svo sem hringtorg eða aðrar umferðaröryggisaðgerðir, eftir því sem faglegt mat gefur tilefni til.
Að lokinni greiningu verði niðurstöður lagðar fyrir skipulagsnefnd ásamt mati á mögulegum útfærslum, forgangsröðun, áætluðum kostnaði og tillögum að næstu skrefum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.