Lögð fram umsókn Líneyjar Maríu Hjálmarsdóttur þar sem eftirfarandi kemur fram:
“Líney María Hjálmarsdóttir þinglýstur eigandi jarðarinnar Tunguháls II, landnúmer 146242, óskar eftir heimild til að stofna um 5.000 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 74800010 útg. 15. sept. 2026.
Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf, af Dagnýju Stefánsdóttur.
Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar fjósbyggingar. Endanleg hönnun mannvirkis liggur ekki fyrir en hámarks byggingarmagn verður um 2.500 m² og hámarks byggingarhæð verður um 7 m frá gólfi í mæni. Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Áform uppbyggingar eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum sem talin eru upp í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins. Jafnframt segir í sama kafla:
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi til byggingar á stökum byggingum sem tengjast starfsemi bújarðar án deiliskipulags, ef umfang og/eða aðstæður gefi tilefni til. Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Hér er sótt um nýbyggingu á fjósi sem er grundvöllur starfsemi bújarðarinnar. Byggingaráform stuðla að aukinni velferð dýra á búinu með auknu rými og samrýmast núverandi landnotkun. Lögð verður áhersla á að áformuð nýbygging samræmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Sótt er um að byggingarreiturinn verði staðsettur í rúmlega 15 metra fjarlægð frá miðlínu héraðsvegarins (nr. 757), sem samræmist ákvæði 32. gr. 1. mgr. vegalaga nr. 80/2007 um 15 metra veghelgunarsvæði. Umsækjandi óskar eftir undanþágu til að víkja frá 50 metra fjarlægðarmörkum skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 (gr. 5.3.2.5, c-lið) og Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 (kafla 4.1).
Hér er sótt um undanþágu vegna sérstakra landfræðilegra og ræktunarlega aðstæðna. Á landeigninni er mikill hæðarmunur og brattur halli fjær veginum, en heppilegt sléttlendi er nær veginum á bilinu 15-50 metrar. Með því að staðsetja fjósbygginguna á sléttlendinu er komið í veg fyrir umfangsmiklar skeringar, jarðvegsflutninga og óþarft jarðrask í brattara landslaginu, sem ellegar myndi skilja eftir sig varanleg sár í ásýnd svæðisins. Þá kemur staðsetningin nær veginum í veg fyrir að byggt sé á verðmætara tún- og ræktunarlandi jarðarinnar fjær veginum, sem samræmist stefnu aðalskipulagsins og jarðalaga um að vernda verðmætt ræktarland og halda ræktarsvæðum órofnum."
Óskað hefur verið eftir umsögn Vegagerðarinnar.
Fyrirliggur umsögn minjavarðar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 50 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Villinganesvegi nr. 757.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit fyrir fjósbyggingu á Tunguhálsi II að fenginni jákvæðri umsögn ráðuneytisins vegna undanþágubeiðni vegna fjarlægðarmarka.