Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

52. fundur 26. ágúst 2026 kl. 16:15 - 16:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir 1. varaforseti
  • Einar Eðvald Einarsson 2. varaforseti
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Magnús Barðdal Reynisson aðalm.
  • Rósanna Valdimarsdóttir varam.
    Aðalmaður: Guðlaugur Skúlason
  • Hrund Pétursdóttir aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason aðalm.
Starfsmenn
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 205

Málsnúmer 2608009FVakta málsnúmer

Fundargerð 205. fundar byggðarráðs frá 20. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Fulltrúar Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, Björn Sigurður Jónsson og Hafdís Einarsdóttir, sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og kynntu áform um uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir björgunarsveitina.

    Farið var yfir starfsemi sveitarinnar og húsnæðisþörf vegna framtíðaruppbyggingar.

    Byggðarráð þakkar fulltrúum Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar fyrir góða kynningu og fyrir mikilvægt starf sveitarinnar í þágu öryggis og almannavarna í Skagafirði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Formaður ber upp svohljóðandi tillögu:

    "Með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar byggðarráð sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni sveitarfélagsins Skagafjarðar prókúruumboð: Elín Dögg Väljoats Gunnarsdóttur, Melatúni 3A, 550 Sauðárkróki.

    Byggðarráð samþykkir að framangreindum starfsmanni verði veitt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar þarf til. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir starfi fjármálastjóra fyrir sveitarfélagið þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils sveitarstjórnar."

    Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Skráning prókúruhafa sveitarfélagsins 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt fram kauptilboð í eignina Garðhús land (Háholt).

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að svara tilboðinu með gagntilboði og felur Fasteignasölu Sauðárkróks.

    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Á lóðinni Furulundi 5 í Varmahlíð stendur aðstöðuhús sem nýtt hefur verið í tengslum við starfsemi leikskólans í Varmahlíð. Húsnæðið hefur ekki lengur hlutverki að gegna í starfsemi sveitarfélagsins og stendur nú autt.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita sveitarstjóra heimild til að fela fasteignasala að verðmeta eignina með sölu til flutnings í huga og leggja fyrir byggðarráð þegar verðmatið liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Vestfjörðum, dags. 27. maí 2026, varðandi skráningu Menningarsjóðs Eyþórs Stefánssonar í fyrirtækjaskrá Skattsins. Samkvæmt reglugerð nr. 532/2026 ber sjálfseignarstofnunum sem starfa á grundvelli staðfestrar skipulagsskrár að vera skráðar í fyrirtækjaskrá og hafa kennitölu. Fram kemur að sjóðurinn hefur ekki verið skráður og að frestur til að ljúka skráningu er til 1. október 2026.

    Fyrir liggur staðfest skipulagsskrá sjóðsins sem leggja þarf fram við skráningu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafið verði umsóknarferli um skráningu Menningarsjóðs Eyþórs Stefánssonar í fyrirtækjaskrá Skattsins og öflun kennitölu fyrir sjóðinn. Fjármálastjóra er falið að annast skráninguna, undirrita nauðsynleg gögn, greiða tilheyrandi skráningargjald og tilkynna sýslumanni um kennitölu sjóðsins þegar hún liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Vestfjörðum, dags. 27. maí 2026, varðandi skráningu Fræðasjóðs Skagfirðinga í fyrirtækjaskrá Skattsins. Samkvæmt reglugerð nr. 532/2026 ber sjálfseignarstofnunum sem starfa á grundvelli staðfestrar skipulagsskrár að vera skráðar í fyrirtækjaskrá og hafa kennitölu. Fram kemur að sjóðurinn hefur ekki verið skráður og að frestur til að ljúka skráningu er til 1. október 2026.

    Fyrir liggur staðfest skipulagsskrá sjóðsins sem leggja þarf fram við skráningu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafið verði umsóknarferli um skráningu Fræðasjóð Skagfirðinga í fyrirtækjaskrá Skattsins og öflun kennitölu fyrir sjóðinn. Fjármálastjóra er falið að annast skráninguna, undirrita nauðsynleg gögn, greiða tilheyrandi skráningargjald og tilkynna sýslumanni um kennitölu sjóðsins þegar hún liggur fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 205 Lögð fram til kynningar samantekt frá Fjölmenningardegi Vinnumálastofnunar sem fram fór 26. maí 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 205. fundar byggðarráðs var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.

2.Félagsmála- og tómstundanefnd - 46

Málsnúmer 2608004FVakta málsnúmer

Fundargerð 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 20. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 46 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 01, málefni fatlaðs fólks, ásamt forsendum lagður fram. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 46 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 02, félagsþjónustu, ásamt forsendum lagður fram. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 46 Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 06, frístundaþjónustu, ásamt forsendum lagður fram. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 46 Fyrir liggur erindi frá Sigríði Sigurðardóttur með ábendingum og hugmyndum um úrbætur á aðstöðu og þjónustu Sundlaugarinnar í Varmahlíð.

    Félagsmála- og tómstundanefnd þakkar Sigríði fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að fá fram sjónarmið og hugmyndir frá íbúum og notendum þjónustunnar, enda veita þær dýrmætt innlegg í áframhaldandi þróun mannvirkja og þjónustu sveitarfélagsins.

    Ábendingarnar verða hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og við forgangsröðun framkvæmda og úrbóta eftir því sem fjárhagslegt svigrúm leyfir.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Hrund Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með átta atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 46 Lagt fram minnisblað frá Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks, og Ölmu Dögg Guðmundsdóttur, ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks, dags. 6. júlí sl. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir helstu verkefnum sem unnin hafa verið á undanförnu ári með stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk í búsetuþjónustu Skagafjarðar.

    Styrkur var veittur til verkefnis sem felur í sér innra eftirlit með þjónustu við fatlað fólk og úrbótavinnu sem ætlað er að styðja við nýsköpun, gæðaþróun og áframhaldandi uppbyggingu málaflokksins. Heildarframlag nam allt að 13,2 m.kr.

    Verkefnin hafa það sameiginlegt að efla faglega og lagalega umgjörð þjónustunnar, undirbúa sveitarfélagið fyrir innleiðingu væntanlegrar reglugerðar um innra eftirlit og bæta aðgengi notenda að upplýsingum um réttindi sín og þjónustu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.

3.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49

Málsnúmer 2606025FVakta málsnúmer

Fundargerð 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 2. júlí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Skipulag og dagsetningar funda Landbúnaðar- og innviðarnefndar yfirfarin og ákveðin. Landbúnaðar- og innviðarnefnd samþykkir samhljóða að fastur fundartími verði þriðji hver miðvikudagur klukkan 9 og fyrsti fundur eftir sumarfrí verður 12. ágúst, fram að áramótum. Auka fundir verða eftir þörfum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Lagt fram bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu dags. 24.6.2026 varðandi ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna málið frekar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Sótt var um styrki í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar fyrir árið 2026. Umsóknirnar voru fimm talsins og eru eftirfarandi:
    - Heiðarlandsvegur
    - Kálfárdalsvegur (framhald)
    - Kolbeinsdalsvegur
    - Rústakofavegur
    - Þúfnavallaleið

    Umsóknir hafa enn ekki verið afgreiddar frá Atvinnuvegaráðuneytinu.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd harmar að umsóknir umsækjenda um styrk í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar hafi ekki enn verið afreiddar, en umsóknarfresturinn rann út 23. mars sl. Landbúnaðar- og innviðanefnd skorar á ráðherra og forstjóra Vegagerðarinnar að hraða afgreiðslu umsókna svo dráttur á henni komi ekki niður á framkvæmd þeirra verka sem sóttu um og hugsanlega gætu fengið styrk á árinu 2026.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Lögð fram umsókn frá Tine Kristine Andersen, Skagfirðingabraut 23, Sauðárkróki um leyfi til að halda 20 kindur og 5 hesta í hólfi nr. 9 á Nöfum. Skriflegt leyfi núverandi lóðarhafa liggur fyrir. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leiti umsókn um búfjárleyfi. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Sveitarfélaginu er gefið færi á að veita umsögn um drög að reglugerð um merkingu og skráningu dýra í samráðsgátt Atvinnuvegaráðuneytisins.
    Lagt fram til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Lagðar voru fram tilkynningar frá Vegagerðinni um niðurfellingu vega af vegaskrá. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 49 Lögð var fram fundargerð Hafnasambands Íslands 2026 til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 49. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.

4.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50

Málsnúmer 2608007FVakta málsnúmer

Fundargerð 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 19. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 08_Hreinlætismál, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
    Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 09_Samgöngumál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Fjárhagsáætlun 2027, málaflokkur 11_Umhverfis- og landbúnaðarmál, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar og Sveinn Úlfarsson landbúnaðar- og umhverfisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 69 fráveita, fyrir rekstrárið 2027 lögð fram.
    Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri Þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir þessum lið.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Fyrirliggur styrkur frá Vegagerðinni upp á 3.000.000 kr. Sem er um 64% af því sem sótt var um. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að útdeila styrknum skv. eftirfarandi:

    Kolbeinsdalsvegur 1.380.000 kr.
    Heiðarlandsvegur 550.000 kr.
    Kálfárdalsvegur 370.000 kr.
    Rústakofavegur 450.000 kr.
    Brú á Goðdalaleið 250.000 kr.

    Sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að tilkynna afgreiðslu til umsóknaraðila.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, 1. varaforseti tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með átta atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 50 Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að auglýsa hólf 27 og 28 í austari flóa við Hofsós til leigu.
    Gert er ráð fyrir fimm ára leigutíma og til greina kemur ef fleiri en einn sækja um að hægt verði að skipta Flóanum upp.
    Sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs falið að auglýsa hólfið.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir, 1. varaforseti tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla 50. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með átta atkvæðum.

5.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51

Málsnúmer 2608011FVakta málsnúmer

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók við stjórn fundarins að nýju.

Fundargerð 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 24. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 61_Hafnarsjóður Skagafjarðar, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 63_SKV-vatnsveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.

    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 65_SKV-sjóveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51 Fjárhagsáætlun Skagafjarðar, málaflokkur 67_SKV-hitaveita, fyrir rekstrarárið 2027 lögð fram.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 51 Beiðni frá SÍS um fulltrúa sveitarfélagsins í tvo bakhópa um umhverfismál.
    Landbúnaðar- og innviðarnefnd samþykkir samhljóða að skipa Hjörvar Halldórsson sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs og Sigurð Arnar Friðriksson forstöðumann framkvæmda sem fulltrúa sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 51. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.

6.Skipulagsnefnd - 103

Málsnúmer 2608006FVakta málsnúmer

Fundargerð 103. fundar skipulagsnefndar frá 13. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 103 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 130/2026, "Áform um lagasetningu - Frumvarp um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010 (ýmsar breytingar)", sjá nánar hér: https://island.is/samradsgatt/mal/4277 .
    Umsagnarfrestur er til og með 21.08.2026.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að gera engar umsagnir við frumvarp um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.
    Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 103 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2, í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 03.06.2026- 16.07.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 704/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/704 .
    Sex umsagnir bárust sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari gögn liggja fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 103 Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar, f.h. Sauðárkróks, landnr. 218097 og Sauðárkróksflugvallar, landnr. 143928, og þinglýstir eigendur Sjávarborgar I, landnr. 145953, Sjávarborgar II, landnr. 145955, og Sjávarborgar III, landnr. 145956 leggja fram sbr. lög nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna merkjalýsingu dags. 7. júlí 2026 sem unnin er á Stoð ehf. Verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

    Afstöðuppdráttur og merkjalýsing var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, undirrituð af eigendum 15.07.2026.
    Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004123.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta framlagða merkjalýsingu og afstöðuuppdrátt.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Beiðni um viðræður varðandi landamerki að Sjávarborg 1, 2, og 3, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 103 Guðmundur Sveinsson sækir um fh. Reiðveganefndar Skagfirðings um leyfi fyrir lagningu reiðvegar frá austari vatnabrú Héraðsvatna við Lón upp að Siglufjarðarvegi.
    Í erindi umsækjanda kemur m.a. fram:
    Eftir viðræður og vettfangsferð með fulltrúa Vegagerðarinnar er talið mun betra að fara sunnan þjóðvegar. Þessi vegkafli hefur lengi verið erfiður hestamönnum vegna legu og takmörkunar á að geta verið utanvegar. Áætlað er að hefja framkvæmdir um leið og leyfi sveitarfélagsins liggur fyrir.

    Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar ásamt leyfi fyrir umbeðinni legu reiðvegar frá landeigendum Lóns L146416 og Narfastaða L146419, þá liggur fyrir umsögn minjavarðar án athugasemda.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi og fagnar um leið umsókninni sem miðar að því að auka öryggi hestamanna sem og annarra vegfarenda um svæðið.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reiðleið frá austanvatnabrúnni að Siglufjarðarvegi - Umsókn um framkvæmdaleyfi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 103 Erna Bára Hreinsdóttir forstöðumaður skipulagsdeildar Vegagerðarinnar sendir bréf til sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins varðandi samgöngur og skipulag frá Vegagerðinni.

    Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga vill Vegagerðin minna á mikilvægi samráðs í tengslum við endurskoðun aðalskipulags og aðra skipulagsvinnu sem og lagalegar skyldur þar að lútandi.
    Vegagerðin óskar eftir góðu samstarfi við vinnslu skipulagsáætlana hvað varðar þætti er snúa að starfsemi stofnunarinnar, svo sem vegum, umferð, umferðaröryggi, höfnum, sjávarhæð, siglingaleiðum, almenningssamgöngum, námum og fl.
    Vegagerðin bendir sérstaklega á ákvæði VI. kafla vegalaga nr. 80/2007 varðandi skipulag og veghelgunarsvæði og þá sér í lagi að ákveða skal legu þjóðvega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfirvalda.
    Leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana sveitarfélaga er að finna á heimasíðum Samgöngustofu og Vegagerðarinnar. Sveitarfélög eru hvött til að vinna umferðaröryggisáætlun eða að sjá til þess að þær séu endurskoðaðar reglulega. Mikilvægt er að góð samvinna sé á milli allra þeirra aðila sem að umferðaröryggismálum koma svo að aðgerðir séu samræmdar og framkvæmdar eins og best verður á kosið.
    Sérstök athygli er vakin á leiðbeiningum um gerð samgöngumats sem finna má á heimasíðu Vegagerðarinnar. Ef fyrirhuguð eru uppbyggingaráform sem bera með sér talsverða aukningu á umferð eða breytingu á samsetningu umferðar óskar Vegagerðin eftir að unnið verði samgöngumat á skipulagstigi til að meta umfang breytinganna og hvort líklegt sé að þær kalli á framkvæmdir sem ekki er gert ráð fyrir á gildandi samgönguáætlun eða í öðrum áætlunum Vegagerðarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 103 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 89 þann 08.07.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 103 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 90 þann 17.07.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 103 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 91 þann 31.07.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 103. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.

7.Skipulagsnefnd - 104

Málsnúmer 2608010FVakta málsnúmer

Fundargerð 104. fundar skipulagsnefndar frá 20. ágúst 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 52. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulagsnefnd - 104 Málið áður á dagskrá á 103. fundi skipulagsnefndar þann 13.08.2026, þá bókað:
    "Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2, í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 03.06.2026- 16.07.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 704/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/704 . Sex umsagnir bárust sem gefa tilefni til minniháttar breytinga. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari gögn liggja fyrir."

    Fyrirliggur frekari útskýring á umsögn Vegagerðarinnar, ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð dags. 18.08.2026 unnin af Kollgátu ehf. arkitektastofu.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.
    Þá samþykkir skipulagsnefnd jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Laufblaðið, Sauðárkróki, íbúðarbyggð og opið svæði, mál nr. 3/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/3 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
    Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 01.07.2026- 15.08.2026 og bárust 6 umsagnir.

    Einnig lagður fram afstöðuuppdráttur dags. 30.07.2026 og minnisblað "Jarðvegskönnun á íbúðarbyggðarsvæði nr. ÍB-404 á Sauðárkróki" dags. 4. ágúst 2026, vegna jarðvegskönnunar við Eyrartún og Gilstún sem unnin var samhliða auglýsingu á vinnslutillögu deiliskipulags Laufblaðsins.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.

    Sigurður H. Ingvarsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 104. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 104 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu fyrir deiliskipulagstillögu fyrir "Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki", mál nr. 485/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/485 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 22.07.2026- 16.08.2026, alls bárust 4 umsagnir.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 104. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 104 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags fyrir "Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Skagafirði", mál nr. 1641/2025 (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1641 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Skipulagsstofnunar um skipulagsmál. Skipulagslýsingin var í auglýsingu dagana 22.07.2026- 16.08.2026, alls bárust 7 umsagnir.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 104. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 104 Björn Magnús Árnason á Stoð ehf. verkfræðistofu f.h. Atla Más Traustasonar, Ingibjargar Klöru Helgadóttur, Ingibjargar Aadnegard og Trausta Kristjánssonar, skráðra eigenda Hofdalabúsins ehf., þinglýsts eiganda Syðri-Hofdala, landnr. 146421, óska eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag fyrir hluta jarðarinnar á kostnað landeiganda, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Meðfylgjandi er skipulagslýsing, útg. 1.0, dags. 05.08.26, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu skipulagsverkefni, helstu forsendum og viðfangsefnum. Í meðfylgjandi skipulagslýsingu er sýnd afmörkun skipulagssvæðis. Skipulagslýsing er unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
    Óskað er eftir því, að fengnu samþykki skipulagsnefndar og sveitarstjórnar, að meðfylgjandi skipulagslýsing fái kynningu skv. 5.2.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
    Skipulagssvæðið er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og verður tillaga að deiliskipulagi unnin á grundvelli þess.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að heimila umsækjendum að vinna deiliskipulagstillögu á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja skipulagslýsinguna fyrir Syðri-Hofdali, í Viðvíkursveit, Skagafirði og senda hana til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til umsagnar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að lýsingin verði kynnt almenningi skv. sömu grein.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Syðri-Hofdalir L146421) í Hofstaðaplássi - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Lagt fram erindi Róberts Óttarssonar dags. 13.08.2026 fyrir hönd eigenda Sauðár, lóð 70 við Sauðárhlíð á Sauðárkróki þar sem nú er rekinn veitingarstaður.
    Þar m.a. segir:
    1. Með tilliti til tilvonandi skipulags á svæðinu í kring er það öruggt mál að það verður ekki gerð endanleg lausn á aðkomu að Sauðá og Litla Skógi fyrr en eftir a.m.k. tvö ár þá viljum við fara fram á að það verði gerð einhver lausn á aðgengi til bráðabirgðar þ.e. að heimilað verði að aka inn á stæði við Sauðá og leggja þar bifreiðum. Teljum við að það verði minni hætta fyrir akandi og gangandi vegfarendur að heimilt verði að aka inn á stæði heldur en að beina fólki á stæði hjá verknáms eða bóknámshúsi FNV og þá að fólk gangi yfir götuna í brekku og ekki nein gangbraut í nágreninu og þar af leiðandi sé fólk hlaupandi yfir götuna eins og reyndin er í dag. Það mætti útfæra leyfið t.d. með því að innkeyrsla sé bara heimil eftir kl 16.00 eða 17.00 þá er skólatími búinn og minni hætta á gangandi vegfarendum og eins mætti einungis heimila inn akstur með beygju til hægri þ.e. þegar ekið er upp brekkuna en ekki þegar ekið er niður brekkuna og að hægri beygja sé einungis leyfð þegar ekið er frá Sauðá.
    Við erum tilbúin að koma að þeim lausnum sem þarf að leysa til að þetta geti orðið að veruleika.

    Rekstraraðilar að veitingahúsinu Sauðá hafa tjáð eigendum að lokun stæðisins hafi komið umtalsvert niður á rekstri staðarins í sumar þar sem að viðskiptavinir telji staðinn lokaðan eftir að lokun var sett á við innkeyrslu á staðinn og á það sér í lagi við erlent ferðafólk sem hefur undrað sig á þessu og snúið frá.

    2. Jafnframt förum við fram á að lóðarleigusamningur sá sem eru á lóð nr. 70 við
    Sauðárhlíð sem dagsettur er 10. júní 2020 verði felldur úr gildi og að lóðin falli eins
    og aðrar lóðin undir almennar reglur um lóðir og að gerður verði nýr
    lóðarleigusamningur.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að taka erindið til frekari skoðunar og felur skipulagsfulltrúa að fá umferðarsérfræðing til að vinna minnisblað að tillögu öruggri lausn við umrædda innkeyrslu á Sauðárhlíð, lóð 70.
    Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að hefja deiliskipulagsvinnu á svæðinu með tilliti til nýrrar landnotkunar í aðalskipulagi.

    Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins víkur af fundi við afgreiðslu erindisins og Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð 70 við Sauðárhlíð - Fyrirspurn til skipulagsnefndar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Pétur Helgi Stefánsson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir þinglýstir eigendur Víðidals 1 (L240159) og Aron Pétursson og Guðmunda Steina Jósefsdóttir eigendur Víðidals 2 (L192872), óska eftir heimild til þess að stækka bæði lóðina Víðidalur 1 auk þess að stækka byggingarreit á lóðinni, hvort tveggja um 3,0 m til vesturs.
    Framlagðir afstöðuuppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Uppdrættirnir eru eftirfarandi:
    1.
    Uppdráttur nr. S-101 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025.
    2.
    Uppdráttur nr. S-101 B1 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025, með breytingu nr. 1 dags. 28. júlí 2026.
    3.
    Uppdráttur nr. S-102 í verki nr. 7730-0403.
    Eftirfarandi kemur m.a. fram í erindinu:
    "Stækkun lóðarinnar Víðidalur 1 gerist með þeim hætti að skipt er 102 m2 millispildu úr landi Víðidals 2, og hún svo sameinuð lóðinni. Víðidalur 1 er 1.088 m2 fyrir breytingarnar, verður 1.190 m2 eftir stækkun.
    Lóðin Víðidalur 1 er skráð íbúðarhúsalóð, og verður svo áfram. Á lóðinni er þegar samþykktur byggingarreitur fyrir íbúðarhús, garðskála og bílgeymslu, óskað er því að hann stækki um 3,0 m til vesturs, líkt og lóðin.
    Landskiptin samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Landskiptin hafa engin áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Ekkert ræktað land er innan útskiptrar lóðar. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar lóðar.
    Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is."
    Fyrirliggur jákvæð umsögn RARIK vegna nálægðar byggingarreits við raflínur, þar sem m.a. kemur fram:
    Varðandi fyrirhugaða framkvæmd námunda við raflínur þá er gott að horfa á leiðbeiningar um vinnu í námunda við háspennulínur sjá hér: https://hms.is/haspenna-lifshaetta .
    Gæta þarf fyllstu varúðar ef unnið er með stórvirkar vinnuvélar eins og krana eða stórar gröfur nálægt línunni til að tryggja að tækin fari ekki inn fyrir hættumörk. Hættumörk koma fram í leiðbeiningunum.
    Rarik óskar eftir að haft verði samband tímanlega við Rarik áður en að framkvæmdum kemur.

    Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og jafnframt samþykkja umbeðna stækkun á byggingarreit.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Víðidalur 2 L192872 - Umsókn um stækkun á lóð og byggingarreit, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Pálmi Jónsson og María Eymundsdóttir landeigendur Huldulands í Hegranesi L223299 óska eftir stækkun byggingarreits fyrir framleiðslueldhús.
    Framleiðslueldhúsið verður um 40 fermetrar, yrði nýtingahlutfall byggingareitsins með eldhúsinu og öðrum byggingum sem er nú þegar búið að byggja innan hans undir 2,5%. Hámarkshæð eldhúsins 4 m. Fjarlægð frá næsta húsi innan Huldulands er ríflega 12 m.
    Byggja á á landi sem telst til ræktunarflokks 4 og nýtist því illa eða að mjög takmörkuðu leiti til ræktunar. Framkvæmdirnar styðja við búsetu og atvinnuþátttöku í dreifbýli og kolefnissporið er mjög lítið þar sem aðallega á að vinna jurtir sem eru ræktaðar í Huldulandi. Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir uppbyggingu tengda landbúnaði svo sem varðandi vinnslu. Framleiðslueldhúsið fer ekki yfir 2000 m2 viðmið og er fyrsta bygging fyrir aðra starfsemi sem rís á jörðinni. Hvorki er gengið á fornminjar né mikilvægt lífríki með byggingunni.
    Meðfylgjandi er:
    - Jákvæð umsögn minjavarðar
    - Hnitsettur uppdráttur af byggingarreit

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðna stækkun á byggingarreit fyrir um 40 m2 framleiðslueldhús í landi Huldulands.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Huldulandi í Hegranesi L223299 - Umsókn um stækkun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Brynhildur Sigtryggsdóttir og Ómar Kjartansson, þinglýstir eigendur jarðarinnar Tjarnarness, landnúmer 227338, óska eftir heimild til að stofna 79.496,1 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Arnarnes", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78260320 útg. 14. ágúst 2026 og merkjalýsingu dags. 14. ágúst 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem annað land (80).
    Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og staðhátta.
    Öll hlunnindi tilheyra áfram Tjarnarnesi landnr. 227338.
    Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4.
    Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu, landnotkun og styðja við búsetu í dreifbýli.
    Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
    Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
    Engin fasteign er á umræddri spildu.
    Tjarnarnes, L227338, er ekki skráð lögbýli í skv. Lögbýlaskrá 2025.
    Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004143.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Tjarnarnes L227338 - Umsókn um stofnun landspildu, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
  • Skipulagsnefnd - 104 Lagt fram erindi frá Rósu Líf Darradóttur formanns Samtaka um dýravelferð dags. 6. ágúst 2026 þar sem Skagafjörður er hvattur til að skoða þá leið sem Norðurþing hefur farið varðandi stefnu um loðdýrarækt í aðalskipulagi.

    Skipulagsnefnd þakkar Samtökunum um dýravelferð fyrir erindið. Nefndin telur ekki tilefni til að hefja breytingu á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 á grundvelli þess.

    Nefndin telur að stefnumörkun í aðalskipulagi og ákvarðanir um landnotkun eigi að byggjast á málefnalegum og skipulagslegum forsendum, svo sem áhrifum starfsemi á landnotkun, umhverfi, heilbrigði, öryggi og nærliggjandi byggð. Nefndin telur ekki rétt að beita skipulagsvaldi sveitarfélagsins með það að markmiði eitt og sér að útiloka tiltekna atvinnustarfsemi sem heimil er samkvæmt landslögum, m.a. lögum um velferð dýra nr. 55/2013 og reglugerð um velferð minka nr. 1277/2014.

    Við meðferð skipulagsmála er jafnframt mikilvægt að gæta þeirra réttinda sem varin eru í stjórnarskrá lýðveldis Íslands nr. 33/1944, þar á meðal atvinnufrelsis 75. gr., auk jafnræðis og meðalhófs.

    Með vísan til framangreinds telur skipulagsnefnd erindið ekki gefa tilefni til breytingar á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
    Bókun fundar Afgreiðsla 104. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 104 Lögð fram tillaga að umferðarúrbótum á Sauðárkróki frá Jódísi Helgu Káradóttur fulltrúa Miðflokksins í skipulagsnefnd.
    Þar sem eftirfarandi kemur fram:
    Lagt er til að skipulagsnefnd feli skipulags- og framkvæmdarsviði að hefja greiningu og undirbúning að framtíðarúrbótum á tveimur lykilgatnamótum á Sauðárkróki:
    - gatnamótum Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar; og
    - gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
    Markmið vinnunnar verði fyrst og fremst að stuðla að auknu umferðaröryggi en jafnframt að tryggja að þróun gatnakerfis Sauðárkróks taki mið af fyrirsjáanlegri uppbyggingu, auknum umferðarþunga og framtíðarstækkun bæjarins.
    Við vinnuna verði byggt á fyrirliggjandi umferðarráðgjöf EFLU frá janúar 2025 vegna gatnamóta Skagfirðingabrautar, Hegrabrautar og Sæmundarhlíðar og sú vinna þróuð áfram. Jafnframt verði gerð sambærileg frumgreining á gatnamótum Skagfirðingabrautar, Sæmundarhlíðar og Borgargerðis.
    Í greiningunni verði meðal annars horft til núverandi umferðarmagns og umferðaröryggis, slysagagna, sjónlengda, umferðar gangandi og hjólandi vegfarenda, umferðar stórra ökutækja og áhrifa fyrirhugaðrar uppbyggingar á umferð um svæðið.
    Jafnframt verði lagt mat á mögulegar framtíðarútfærslur gatnamótanna, svo sem hringtorg eða aðrar umferðaröryggisaðgerðir, eftir því sem faglegt mat gefur tilefni til.
    Að lokinni greiningu verði niðurstöður lagðar fyrir skipulagsnefnd ásamt mati á mögulegum útfærslum, forgangsröðun, áætluðum kostnaði og tillögum að næstu skrefum.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 104. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026 með níu atkvæðum.
  • Skipulagsnefnd - 104 Þann 22.04.2026 samþykkti sveitarstjórn Skagafjarðar tillögu að deiliskipulagi fyrir Lönguborg, landnr. 225909, í Hegranesi, Skagafirði. Málsnúmer í skipulagsgátt er 1624/2025. Deiliskipulagið gerir grein fyrir þremur byggingarreitum á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Heildar byggingarmagn á landeigninni verður skv. skipulaginu 364 m². Á Lönguborg er eitt íbúðarhús með bílskúr, byggt árið 2018, og eitt gestahús, byggt árið 2024, og á byggingarreitur nr. BR-1 við um þessar byggingar. Byggingarreitur nr. BR-2 er fyrir tvö gestahús á einni hæð. Hámarks byggingarmagn innan BR-2 er 70 m² og hámarks stærð botnflata bygginga er 40 m². Innan byggingarreits nr. BR-3 er gert ráð fyrir saunu- eða gufubaðsbyggingu, allt að 14 m² að stærð. Vestan við skipulagssvæðið liggur Hegranesvegur (764) sem er tengivegur af tegundinni C7 skv. vegaskrá 2025. Skv. d-lið, 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki staðsetja íbúðir eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m, utan þéttbýlis. 100 m lína frá þjóðvegi er sýnd á skipulagsuppdrætti og ganga byggingarreitir nær þjóðvegi en 100 m. Skv. 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur ráðherra, að fenginni umsögn HMS og hlutaðeigandi sveitarstjórnar veitt undanþágu frá einstökum greinum skipulagsreglugerðar. Minnstu fjarlægðir byggingarreita frá þjóðvegi, í beinni loftlínu, eru eftirfarandi:
    BR-1: 83,9 m
    BR-2: 90,4 m
    BR-3: 94,5 m
    Minnsta fjarlægð núverandi íbúðarhúss frá þjóðvegi er 85,4 m.
    Skv. 2.5 kafla greinargerðar, og eins og fram kemur í afgreiðslubréfi HMS, skal sækja um undanþágu til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá fjarlægðarreglu skipulagsreglugerðar. Skv. GPS-mælingum stendur íbúðarhúsið rúmlega 10 m hærra en þjóðvegurinn vestan við það og það sama á við um nýja byggingarreiti sem fjallað er um í skipulaginu. Því má ætla að húsum, sem munu rísa innan þessara byggingarreita, stafi ekki hætta af umferð um Hegranesveg þar sem vegurinn liggur mun neðar í landinu. Eins og sést á meðfylgjandi yfirlitsuppdrætti og skipulagsuppdrætti er stærstur hluti landeignarinnar innan 100 m frá vegi og á austur mörkum lóðar er skurður. Því er verulega takmarkað landrými utan við 100 m frá vegi.
    Meðfylgjandi eru ljósmyndir sem sýna hæðarmun á vegstæði og fyrirhuguðu byggingarsvæði.
    Því er sótt um undanþágu með þeim rökum að fyrirhugaðir byggingarreitir liggja það hátt í landinu, miðað við hæð vegarins, að ekki stafi nokkur hætta af umferð um Hegranesveg. Jafnframt eru aðstæður þannig að byggingarreitir komast ekki fjær vegi vegna landamerkja og skurðar sem liggur meðfram landamerkjum að austanverðu. Þá eru byggingarreitir hafðir eins nálægt núverandi húsi og land og ákvæði reglugerða leyfa til að lágmarka frekara jarðrask. Að lokum er bent á að nýjir byggingarreitir eru fjær þjóðvegi en núverandi íbúðarhús en byggingarreitur þess var minnkaður í deiliskipulagi og færður fjær þjóðvegi.

    Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 100 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Hegranesvegi nr. (764).
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Langaborg (L225909) - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.

8.Skráning prókúruhafa sveitarfélagsins 2026

Málsnúmer 2606043Vakta málsnúmer

Vísað frá 205. fundi byggðarráðs frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Formaður ber upp svohljóðandi tillögu:

"Með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 heimilar byggðarráð sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmanni sveitarfélagsins Skagafjarðar prókúruumboð: Elín Dögg Väljoats Gunnarsdóttur, Melatúni 3A, 550 Sauðárkróki.

Byggðarráð samþykkir að framangreindum starfsmanni verði veitt prókúruumboð í samræmi við téð lagaákvæði. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki byggðarráðs og/eða sveitarstjórnar þarf til. Umboðið gildir meðan viðkomandi gegnir starfi fjármálastjóra fyrir sveitarfélagið þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils sveitarstjórnar."

Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar"

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að heimila sveitarstjóra að veita Elín Dögg Väljoats Gunnarsdóttur, Melatúni 3A, 550 Sauðárkróki prókúruumboð í samræmi við 4. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

9.Beiðni um viðræður varðandi landamerki að Sjávarborg 1, 2, og 3

Málsnúmer 1907144Vakta málsnúmer

Vísað frá 103. fundi skipulagsnefndar frá 13. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar, f.h. Sauðárkróks, landnr. 218097 og Sauðárkróksflugvallar, landnr. 143928, og þinglýstir eigendur Sjávarborgar I, landnr. 145953, Sjávarborgar II, landnr. 145955, og Sjávarborgar III, landnr. 145956 leggja fram sbr. lög nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna merkjalýsingu dags. 7. júlí 2026 sem unnin er á Stoð ehf. Verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.

Afstöðuppdráttur og merkjalýsing var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni, undirrituð af eigendum 15.07.2026.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004123.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta framlagða merkjalýsingu og afstöðuuppdrátt."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að staðfesta framlagða merkjalýsingu og afstöðuuppdrátt.

10.Reiðleið frá austanvatnabrúnni að Siglufjarðarvegi - Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2608050Vakta málsnúmer

Vísað frá 103. fundi skipulagsnefndar frá 13. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Guðmundur Sveinsson sækir um fh. Reiðveganefndar Skagfirðings um leyfi fyrir lagningu reiðvegar frá austari vatnabrú Héraðsvatna við Lón upp að Siglufjarðarvegi.
Í erindi umsækjanda kemur m.a. fram:
Eftir viðræður og vettfangsferð með fulltrúa Vegagerðarinnar er talið mun betra að fara sunnan þjóðvegar. Þessi vegkafli hefur lengi verið erfiður hestamönnum vegna legu og takmörkunar á að geta verið utanvegar. Áætlað er að hefja framkvæmdir um leið og leyfi sveitarfélagsins liggur fyrir.

Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar ásamt leyfi fyrir umbeðinni legu reiðvegar frá landeigendum Lóns L146416 og Narfastaða L146419, þá liggur fyrir umsögn minjavarðar án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi og fagnar um leið umsókninni sem miðar að því að auka öryggi hestamanna sem og annarra vegfarenda um svæðið."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.

11.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Málið áður á dagskrá á 103. fundi skipulagsnefndar þann 13.08.2026, þá bókað:
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2, í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 03.06.2026- 16.07.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 704/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/704 . Sex umsagnir bárust sem gefa tilefni til minniháttar breytinga. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins þar til frekari gögn liggja fyrir."

Fyrirliggur frekari útskýring á umsögn Vegagerðarinnar, ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð dags. 18.08.2026 unnin af Kollgátu ehf. arkitektastofu.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.
Þá samþykkir skipulagsnefnd jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og felur skipulagsfulltrúa að senda hana til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

12.Syðri-Hofdalir L146421) í Hofstaðaplássi - Deiliskipulag

Málsnúmer 2608158Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Björn Magnús Árnason á Stoð ehf. verkfræðistofu f.h. Atla Más Traustasonar, Ingibjargar Klöru Helgadóttur, Ingibjargar Aadnegard og Trausta Kristjánssonar, skráðra eigenda Hofdalabúsins ehf., þinglýsts eiganda Syðri-Hofdala, landnr. 146421, óska eftir heimild til að láta vinna deiliskipulag fyrir hluta jarðarinnar á kostnað landeiganda, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er skipulagslýsing, útg. 1.0, dags. 05.08.26, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu skipulagsverkefni, helstu forsendum og viðfangsefnum. Í meðfylgjandi skipulagslýsingu er sýnd afmörkun skipulagssvæðis. Skipulagslýsing er unnin hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því, að fengnu samþykki skipulagsnefndar og sveitarstjórnar, að meðfylgjandi skipulagslýsing fái kynningu skv. 5.2.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Skipulagssvæðið er á landbúnaðarlandi skv. aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 og verður tillaga að deiliskipulagi unnin á grundvelli þess.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að heimila umsækjendum að vinna deiliskipulagstillögu á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja skipulagslýsinguna fyrir Syðri-Hofdali, í Viðvíkursveit, Skagafirði og senda hana til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til umsagnar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að lýsingin verði kynnt almenningi skv. sömu grein."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að heimila umsækjendum að vinna deiliskipulagstillögu á eigin kostnað skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða skipulagslýsinguna fyrir Syðri-Hofdali, í Viðvíkursveit, Skagafirði og felur skipulagsfulltrúa að senda hana til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til umsagnar skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að lýsingin verði kynnt almenningi skv. sömu grein.

13.Lóð 70 við Sauðárhlíð - Fyrirspurn til skipulagsnefndar

Málsnúmer 2608157Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lagt fram erindi Róberts Óttarssonar dags. 13.08.2026 fyrir hönd eigenda Sauðár, lóð 70 við Sauðárhlíð á Sauðárkróki þar sem nú er rekinn veitingarstaður.
Þar m.a. segir:
1. Með tilliti til tilvonandi skipulags á svæðinu í kring er það öruggt mál að það verður ekki gerð endanleg lausn á aðkomu að Sauðá og Litla Skógi fyrr en eftir a.m.k. tvö ár þá viljum við fara fram á að það verði gerð einhver lausn á aðgengi til bráðabirgðar þ.e. að heimilað verði að aka inn á stæði við Sauðá og leggja þar bifreiðum. Teljum við að það verði minni hætta fyrir akandi og gangandi vegfarendur að heimilt verði að aka inn á stæði heldur en að beina fólki á stæði hjá verknáms eða bóknámshúsi FNV og þá að fólk gangi yfir götuna í brekku og ekki nein gangbraut í nágreninu og þar af leiðandi sé fólk hlaupandi yfir götuna eins og reyndin er í dag. Það mætti útfæra leyfið t.d. með því að innkeyrsla sé bara heimil eftir kl 16.00 eða 17.00 þá er skólatími búinn og minni hætta á gangandi vegfarendum og eins mætti einungis heimila inn akstur með beygju til hægri þ.e. þegar ekið er upp brekkuna en ekki þegar ekið er niður brekkuna og að hægri beygja sé einungis leyfð þegar ekið er frá Sauðá.
Við erum tilbúin að koma að þeim lausnum sem þarf að leysa til að þetta geti orðið að veruleika.

Rekstraraðilar að veitingahúsinu Sauðá hafa tjáð eigendum að lokun stæðisins hafi komið umtalsvert niður á rekstri staðarins í sumar þar sem að viðskiptavinir telji staðinn lokaðan eftir að lokun var sett á við innkeyrslu á staðinn og á það sér í lagi við erlent ferðafólk sem hefur undrað sig á þessu og snúið frá.

2. Jafnframt förum við fram á að lóðarleigusamningur sá sem eru á lóð nr. 70 við
Sauðárhlíð sem dagsettur er 10. júní 2020 verði felldur úr gildi og að lóðin falli eins
og aðrar lóðin undir almennar reglur um lóðir og að gerður verði nýr
lóðarleigusamningur.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að taka erindið til frekari skoðunar og felur skipulagsfulltrúa að fá umferðarsérfræðing til að vinna minnisblað að tillögu öruggri lausn við umrædda innkeyrslu á Sauðárhlíð, lóð 70.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að hefja deiliskipulagsvinnu á svæðinu með tilliti til nýrrar landnotkunar í aðalskipulagi.

Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins víkur af fundi við afgreiðslu erindisins og Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað."

Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að hefja deiliskipulagsvinnu á svæðinu með tilliti til nýrrar landnotkunar í aðalskipulagi.

14.Víðidalur 2 L192872 - Umsókn um stækkun á lóð og byggingarreit

Málsnúmer 2608054Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Pétur Helgi Stefánsson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir þinglýstir eigendur Víðidals 1 (L240159) og Aron Pétursson og Guðmunda Steina Jósefsdóttir eigendur Víðidals 2 (L192872), óska eftir heimild til þess að stækka bæði lóðina Víðidalur 1 auk þess að stækka byggingarreit á lóðinni, hvort tveggja um 3,0 m til vesturs.
Framlagðir afstöðuuppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Uppdrættirnir eru eftirfarandi:
1.
Uppdráttur nr. S-101 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025.
2.
Uppdráttur nr. S-101 B1 í verki nr. 7730-0403, dags. 25. ágúst 2025, með breytingu nr. 1 dags. 28. júlí 2026.
3.
Uppdráttur nr. S-102 í verki nr. 7730-0403.
Eftirfarandi kemur m.a. fram í erindinu:
"Stækkun lóðarinnar Víðidalur 1 gerist með þeim hætti að skipt er 102 m2 millispildu úr landi Víðidals 2, og hún svo sameinuð lóðinni. Víðidalur 1 er 1.088 m2 fyrir breytingarnar, verður 1.190 m2 eftir stækkun.
Lóðin Víðidalur 1 er skráð íbúðarhúsalóð, og verður svo áfram. Á lóðinni er þegar samþykktur byggingarreitur fyrir íbúðarhús, garðskála og bílgeymslu, óskað er því að hann stækki um 3,0 m til vesturs, líkt og lóðin.
Landskiptin samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Landskiptin hafa engin áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Ekkert ræktað land er innan útskiptrar lóðar. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar lóðar.
Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is."
Fyrirliggur jákvæð umsögn RARIK vegna nálægðar byggingarreits við raflínur, þar sem m.a. kemur fram:
Varðandi fyrirhugaða framkvæmd námunda við raflínur þá er gott að horfa á leiðbeiningar um vinnu í námunda við háspennulínur sjá hér: https://hms.is/haspenna-lifshaetta .
Gæta þarf fyllstu varúðar ef unnið er með stórvirkar vinnuvélar eins og krana eða stórar gröfur nálægt línunni til að tryggja að tækin fari ekki inn fyrir hættumörk. Hættumörk koma fram í leiðbeiningunum.
Rarik óskar eftir að haft verði samband tímanlega við Rarik áður en að framkvæmdum kemur.

Merkjalýsing skv. reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 er fylgiskjal með umsókn þessari. Stofnað hefur verið mál með málsnúmer M004137 hjá Landeignaskráningu HMS, landeignaskraning.hms.is.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og jafnframt samþykkja umbeðna stækkun á byggingarreit."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti og jafnframt samþykkir sveitarstjórn umbeðna stækkun á byggingarreit.

15.Huldulandi í Hegranesi L223299 - Umsókn um stækkun byggingarreits

Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Pálmi Jónsson og María Eymundsdóttir landeigendur Huldulands í Hegranesi L223299 óska eftir stækkun byggingarreits fyrir framleiðslueldhús.
Framleiðslueldhúsið verður um 40 fermetrar, yrði nýtingahlutfall byggingareitsins með eldhúsinu og öðrum byggingum sem er nú þegar búið að byggja innan hans undir 2,5%. Hámarkshæð eldhúsins 4 m. Fjarlægð frá næsta húsi innan Huldulands er ríflega 12 m.
Byggja á á landi sem telst til ræktunarflokks 4 og nýtist því illa eða að mjög takmörkuðu leiti til ræktunar. Framkvæmdirnar styðja við búsetu og atvinnuþátttöku í dreifbýli og kolefnissporið er mjög lítið þar sem aðallega á að vinna jurtir sem eru ræktaðar í Huldulandi. Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir uppbyggingu tengda landbúnaði svo sem varðandi vinnslu. Framleiðslueldhúsið fer ekki yfir 2000 m2 viðmið og er fyrsta bygging fyrir aðra starfsemi sem rís á jörðinni. Hvorki er gengið á fornminjar né mikilvægt lífríki með byggingunni.
Meðfylgjandi er:
- Jákvæð umsögn minjavarðar
- Hnitsettur uppdráttur af byggingarreit

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðna stækkun á byggingarreit fyrir um 40 m2 framleiðslueldhús í landi Huldulands."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að heimila umbeðna stækkun á byggingarreit fyrir um 40 m2 framleiðslueldhús í landi Huldulands.

16.Tjarnarnes L227338 - Umsókn um stofnun landspildu

Málsnúmer 2608155Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Brynhildur Sigtryggsdóttir og Ómar Kjartansson, þinglýstir eigendur jarðarinnar Tjarnarness, landnúmer 227338, óska eftir heimild til að stofna 79.496,1 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Arnarnes", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78260320 útg. 14. ágúst 2026 og merkjalýsingu dags. 14. ágúst 2026. Afstöðuppdrátturinn var unninn á Stoð verkfræðistofu ehf. af Dagnýju Stefánsdóttur og merkjalýsing unnin af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir því að útskipt spilda verði skráð sem annað land (80).
Landheiti útskiptrar spildu vísar til upprunajarðar og staðhátta.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Tjarnarnesi landnr. 227338.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4.
Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu, landnotkun og styðja við búsetu í dreifbýli.
Landskipti hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Engin fasteign er á umræddri spildu.
Tjarnarnes, L227338, er ekki skráð lögbýli í skv. Lögbýlaskrá 2025.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004143.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti.

17.Langaborg (L225909) - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag

Málsnúmer 2511043Vakta málsnúmer

Vísað frá 104. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Þann 22.04.2026 samþykkti sveitarstjórn Skagafjarðar tillögu að deiliskipulagi fyrir Lönguborg, landnr. 225909, í Hegranesi, Skagafirði. Málsnúmer í skipulagsgátt er 1624/2025. Deiliskipulagið gerir grein fyrir þremur byggingarreitum á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-3 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Heildar byggingarmagn á landeigninni verður skv. skipulaginu 364 m². Á Lönguborg er eitt íbúðarhús með bílskúr, byggt árið 2018, og eitt gestahús, byggt árið 2024, og á byggingarreitur nr. BR-1 við um þessar byggingar. Byggingarreitur nr. BR-2 er fyrir tvö gestahús á einni hæð. Hámarks byggingarmagn innan BR-2 er 70 m² og hámarks stærð botnflata bygginga er 40 m². Innan byggingarreits nr. BR-3 er gert ráð fyrir saunu- eða gufubaðsbyggingu, allt að 14 m² að stærð. Vestan við skipulagssvæðið liggur Hegranesvegur (764) sem er tengivegur af tegundinni C7 skv. vegaskrá 2025. Skv. d-lið, 5.3.2.5. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki staðsetja íbúðir eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m, utan þéttbýlis. 100 m lína frá þjóðvegi er sýnd á skipulagsuppdrætti og ganga byggingarreitir nær þjóðvegi en 100 m. Skv. 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur ráðherra, að fenginni umsögn HMS og hlutaðeigandi sveitarstjórnar veitt undanþágu frá einstökum greinum skipulagsreglugerðar. Minnstu fjarlægðir byggingarreita frá þjóðvegi, í beinni loftlínu, eru eftirfarandi:
BR-1: 83,9 m
BR-2: 90,4 m
BR-3: 94,5 m
Minnsta fjarlægð núverandi íbúðarhúss frá þjóðvegi er 85,4 m.
Skv. 2.5 kafla greinargerðar, og eins og fram kemur í afgreiðslubréfi HMS, skal sækja um undanþágu til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá fjarlægðarreglu skipulagsreglugerðar. Skv. GPS-mælingum stendur íbúðarhúsið rúmlega 10 m hærra en þjóðvegurinn vestan við það og það sama á við um nýja byggingarreiti sem fjallað er um í skipulaginu. Því má ætla að húsum, sem munu rísa innan þessara byggingarreita, stafi ekki hætta af umferð um Hegranesveg þar sem vegurinn liggur mun neðar í landinu. Eins og sést á meðfylgjandi yfirlitsuppdrætti og skipulagsuppdrætti er stærstur hluti landeignarinnar innan 100 m frá vegi og á austur mörkum lóðar er skurður. Því er verulega takmarkað landrými utan við 100 m frá vegi.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir sem sýna hæðarmun á vegstæði og fyrirhuguðu byggingarsvæði.
Því er sótt um undanþágu með þeim rökum að fyrirhugaðir byggingarreitir liggja það hátt í landinu, miðað við hæð vegarins, að ekki stafi nokkur hætta af umferð um Hegranesveg. Jafnframt eru aðstæður þannig að byggingarreitir komast ekki fjær vegi vegna landamerkja og skurðar sem liggur meðfram landamerkjum að austanverðu. Þá eru byggingarreitir hafðir eins nálægt núverandi húsi og land og ákvæði reglugerða leyfa til að lágmarka frekara jarðrask. Að lokum er bent á að nýjir byggingarreitir eru fjær þjóðvegi en núverandi íbúðarhús en byggingarreitur þess var minnkaður í deiliskipulagi og færður fjær þjóðvegi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 100 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Hegranesvegi nr. (764).

Björn Magnús Árnason sat fundinn undir afgreiðslu þessa liðar."

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að óskað verði eftir undanþágu Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá d. lið 5.3.2.5, gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, vegna 100 m fjarlægðarmarka byggingarreits frá Hegranesvegi nr. 764.

18.Fundargerðir byggðarráðs 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Á 51. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 1. júlí 2026, var samþykkt að
veita byggðarráði heimild til fullnaðarafgreiðslu mála með vísan til 6. mgr. 32.
gr. samþykkta um stjórn Skagafjarðar í sumarleyfi sveitarstjórnar, skv. III. kafla
8. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Sumarleyfið hófst 2. júlí 2026 og stóð til 18. ágúst 2026.

Fundargerðir funda byggðarráðs Skagafjarðar í sumarleyfi sveitarstjórnar lagðar fram til kynningar á 52. fundi sveitarstjórnar þann 26. ágúst 2026.
Um er að ræða fundargerð 200. fundar frá 28. júlí 2026, 201. fundar frá 8. júlí 2026, 202. fundar frá 16. júlí 2026, 203. fundar frá 21. júlí 2026 og 204. fundar frá 10. ágúst 2026.

19.Fundargerðir SSNV 2026

Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer

Fundargerð 142. fundar stjórnar SSNV frá 13. ágúst 2026 lögð fram til kynningar á 52. fundi sveitarstjórnar 26. ágúst 2026.

Fundi slitið - kl. 16:40.