Landbúnaðar- og innviðanefnd
Dagskrá
1.Fundaskipulag Landbúnaðar- og innviðanefndar áf 3-4 2026
Málsnúmer 2606238Vakta málsnúmer
Skipulag og dagsetningar funda Landbúnaðar- og innviðarnefndar yfirfarin og ákveðin. Landbúnaðar- og innviðarnefnd samþykkir samhljóða að fastur fundartími verði þriðji hver miðvikudagur klukkan 9 og fyrsti fundur eftir sumarfrí verður 12. ágúst, fram að áramótum. Auka fundir verða eftir þörfum.
2.Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
Málsnúmer 2606208Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu dags. 24.6.2026 varðandi ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna málið frekar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna málið frekar.
3.Umsóknir í Styrkvegasjóð 2026
Málsnúmer 2601050Vakta málsnúmer
Sótt var um styrki í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar fyrir árið 2026. Umsóknirnar voru fimm talsins og eru eftirfarandi:
- Heiðarlandsvegur
- Kálfárdalsvegur (framhald)
- Kolbeinsdalsvegur
- Rústakofavegur
- Þúfnavallaleið
Umsóknir hafa enn ekki verið afgreiddar frá Atvinnuvegaráðuneytinu.
Landbúnaðar- og innviðanefnd harmar að umsóknir umsækjenda um styrk í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar hafi ekki enn verið afreiddar, en umsóknarfresturinn rann út 23. mars sl. Landbúnaðar- og innviðanefnd skorar á ráðherra og forstjóra Vegagerðarinnar að hraða afgreiðslu umsókna svo dráttur á henni komi ekki niður á framkvæmd þeirra verka sem sóttu um og hugsanlega gætu fengið styrk á árinu 2026.

4.Umsókn um leyfi til búfjárhalds í þéttbýli
Málsnúmer 2605192Vakta málsnúmer
Lögð fram umsókn frá Tine Kristine Andersen, Skagfirðingabraut 23, Sauðárkróki um leyfi til að halda 20 kindur og 5 hesta í hólfi nr. 9 á Nöfum. Skriflegt leyfi núverandi lóðarhafa liggur fyrir. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leiti umsókn um búfjárleyfi.
5.Samráð; Drög að reglugerð um merkingu og skráningu dýra
Málsnúmer 2605213Vakta málsnúmer
Sveitarfélaginu er gefið færi á að veita umsögn um drög að reglugerð um merkingu og skráningu dýra í samráðsgátt Atvinnuvegaráðuneytisins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.Tilkynningar um niðurfellingu vega af vegaskrá
Málsnúmer 2601035Vakta málsnúmer
Lagðar voru fram tilkynningar frá Vegagerðinni um niðurfellingu vega af vegaskrá.
7.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer
Lögð var fram fundargerð Hafnasambands Íslands 2026 til kynningar.
Fundi slitið - kl. 14:00.