Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

46. fundur 20. ágúst 2026 kl. 14:00 - 15:35 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Jakob Logi Gunnarsson formaður
  • Guðrún Sonja Birgisdóttir varaform.
  • Einar Eðvald Einarsson
    Aðalmaður: Halldór Jón Sigurðsson
  • Sædís Bylgja Jónsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal leiðtogi frístunda- og íþróttamála
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
  • Margrét Petra Ragnarsdóttir leiðtogi farsældar og félagsmála
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 01_Þjónusta við fatlað fólk

Málsnúmer 2608073Vakta málsnúmer

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 01, málefni fatlaðs fólks, ásamt forsendum lagður fram.

2.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 02_Félagsþjónusta

Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 02, félagsþjónustu, ásamt forsendum lagður fram.

3.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 06_Æskulýðs- og íþróttamál

Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer

Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2027 í málaflokki 06, frístundaþjónustu, ásamt forsendum lagður fram.

4.Ábendingar vegna Varmahlíðarlaugar

Málsnúmer 2608143Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sigríði Sigurðardóttur með ábendingum og hugmyndum um úrbætur á aðstöðu og þjónustu Sundlaugarinnar í Varmahlíð.

Félagsmála- og tómstundanefnd þakkar Sigríði fyrir erindið og þær ábendingar sem þar koma fram. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að fá fram sjónarmið og hugmyndir frá íbúum og notendum þjónustunnar, enda veita þær dýrmætt innlegg í áframhaldandi þróun mannvirkja og þjónustu sveitarfélagsins.

Ábendingarnar verða hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og við forgangsröðun framkvæmda og úrbóta eftir því sem fjárhagslegt svigrúm leyfir.

Samþykkt samhljóða.

5.Handbók verklag og sniðmát málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2601275Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks, og Ölmu Dögg Guðmundsdóttur, ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks, dags. 6. júlí sl. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir helstu verkefnum sem unnin hafa verið á undanförnu ári með stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk í búsetuþjónustu Skagafjarðar.

Styrkur var veittur til verkefnis sem felur í sér innra eftirlit með þjónustu við fatlað fólk og úrbótavinnu sem ætlað er að styðja við nýsköpun, gæðaþróun og áframhaldandi uppbyggingu málaflokksins. Heildarframlag nam allt að 13,2 m.kr.

Verkefnin hafa það sameiginlegt að efla faglega og lagalega umgjörð þjónustunnar, undirbúa sveitarfélagið fyrir innleiðingu væntanlegrar reglugerðar um innra eftirlit og bæta aðgengi notenda að upplýsingum um réttindi sín og þjónustu.

Fundi slitið - kl. 15:35.